Erlent

Segja Al Qaeda skipuleggja hryðjuverkaárás í Bandaríkjunum daginn fyrir kosningar

Atli Ísleifsson skrifar
Talið er að hryðjuverkasamtök hafi lengi stefnt að því að gera árásir á kjörstöðum á kosningadegi í Bandaríkjunum.
Talið er að hryðjuverkasamtök hafi lengi stefnt að því að gera árásir á kjörstöðum á kosningadegi í Bandaríkjunum. Vísir/AFP
Bandaríska leyniþjónustan hefur varað yfirvöld í New York, Texas og Virginíu við að hryðjuverkasamtökin Al-Qaeda hyggi á hryðjuverkaárás á mánudag, daginn fyrir kosningarnar.

CBS hefur þetta eftir nafnlausum heimildum innan bandarísku leyniþjónustunnar. Ekki hafa komið fram neinar upplýsingar um ákveðið skotmark, en verið að að kanna hvort að þær upplýsingar sem hafi borist teljist trúverðugar.

Viðvaranir vegna hryðjuverkahættu koma jafnan oft upp í tengslum við hátíðir og fjölmenna viðburði og er talið að hryðjuverkasamtök hafi lengi stefnt að því að gera árásir á kjörstöðum á kosningadegi í Bandaríkjunum.

Talsmaður alríkislögreglunnar FBI vill ekki tjá sig um upplýsingarnar í samtali við CBS.

Yfirvöld eru jafnframt í viðbragðsstöðu vegna mögulegra tölvuárása á kjördegi þar sem óttast er að hakkarar geti dreift röngum upplýsingum sem hafi áhrif á niðurstöðu kosninganna.


Tengdar fréttir

Nærast bæði á óvinsældum hins

Á þriðjudaginn í næstu viku lýkur hinni ógnarlöngu kosningabaráttu í Bandaríkjunum þegar loks verður gengið til kosninga. Á lokasprettinum hefur dregið mjög saman með þeim Hillary Clinton og Donald Trump.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×