Segir Ísraelstillögu samþykkta óútfærða því Björk var að hætta ingvar haraldsson skrifar 18. september 2015 14:48 Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir óljóst til hvaða vara sniðgangan muni ná. vísir/stefán
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur telur að undirbúa hefði mátt sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskum vörum betur. Ekki er búið að ákveða hvaða ísraelsku vörur verði sniðgengnar og með hvaða hætti það verði gert. „Kjarni málsins snýr að því að skilgreina sniðgöngu á vörum sem tengjast mannréttindabrotum og þar beinast auðvitað sjónir að hernumdu svæðunum og landtökubyggðunum,” segir Dagur. Hann sjái ekki sjá fyrir sér að að kaupum á öllum ísraelskum vörum verði hætt. Horft verði til fordæma annara borga og fyrirtækja sem hafi verið að skoða sambærilega hluti við útfærslu á sniðgöngunni.Hefði ekki verið eðlilegra að finna útfærsluna áður en þið samþykktuð þetta?„Jú, jú, það má alveg segja það.”En af hverju var það ekki gert?„Þetta tengdist auðvitað því að Björk Vilhelmsdóttir var að hætta í borgarstjórn og þetta var hennar lokatillaga,” segir Dagur. Borgarstjórinn segist engin formleg viðbrögð hafa fengið frá ísraelskum stjórnvöldum vegna málsins annað en það sem birst hafi í fjölmiðlum. „Við erum að sjálfsögðu fús til viðræðna við alla um þessi mál,” segir hann. Dagur segir tillöguna vera í samræmi við fyrri framgöngu borgarinnar í mannréttindamálum. Reykjavíkurborg hafi áður gert athugasemdir við kínversk stjórnvöld vegna framkomu þeirra gagnvart andhófsmönnum sem og vegna lagasetningar gagnvart mannréttindabrotum samkynhneigðra í Moskvu.Áhrifalítið geri aðrir ekki slíkt hið sama Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands segir nokkuð sérstakt að Reykjavík hafi ekki haft samband við stjórnvöld vilji þau að tillagan skili árangri. „Þessi tillaga mun litlu skila ef borgin fylgir þessu ekki eftir með því að tala t.d. við höfuðborgir annara Norðurlanda, vinaborgir sínar eða íslensk stjórnvöld fylgi fordæmi sínu,“ segir Baldur. En fylgi aðrar borgir eð ríki fordæmi Reykjavíkurborgar geti tillagan haft mikil áhrif. Ísraelar óttist mjög að vera beittir víðtæku viðskiptabanni sem myndi gera þeim mjög erfitt fyrir og því hafi Ísraelar svarað Reykjavíkurborg af mikilli hörku.
Tengdar fréttir Ráðherra segir sniðgöngu áhrifalausa Utanríkisráðherra segir það hafa engin áhrif þótt borgin sniðgangi ísraelskar vörur. Hann efast um að ákvörðunin standist lög um opinber innkaup. 18. september 2015 07:00 Gyðingar vilja sækja rétt sinn vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar Evrópska gyðingaþingið íhugar að sækja rétt sinn fyrir Alþjóðaviðskiptastofnuninni á grundvelli sáttmála stofnunarinnar sem Ísland og Ísrael eru aðilar að 18. september 2015 07:46 Ísraelskur ríkisborgari biður stöðumælaverði um að sekta sig ekki Bíleigandi bað stöðumælaverði um að virða það að hann sé ísraelskur ríkisborgari, og því megi þeir ekki sekta hann fyrir stöðubrot. 18. september 2015 14:57 Vörurnar sem koma til greina í sniðgöngu borgarinnar "Almennt er viðskiptabann þannig að þá á það við um ísraelskar vörur, svo getur vel verið að það þróist eitthvað áfram.“ 17. september 2015 08:46 „Mátti auðvitað búast við viðbrögðum“ Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hörð viðbrögð við ákvörðun borgarinnar um að sniðganga vörur frá Ísrael ekki hafa komið sér á óvart. Unnið sé að því að útfæra ákvörðina eins vel og hægt sé. 18. september 2015 12:58 Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Fleiri fréttir Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Sjá meira
Ráðherra segir sniðgöngu áhrifalausa Utanríkisráðherra segir það hafa engin áhrif þótt borgin sniðgangi ísraelskar vörur. Hann efast um að ákvörðunin standist lög um opinber innkaup. 18. september 2015 07:00
Gyðingar vilja sækja rétt sinn vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar Evrópska gyðingaþingið íhugar að sækja rétt sinn fyrir Alþjóðaviðskiptastofnuninni á grundvelli sáttmála stofnunarinnar sem Ísland og Ísrael eru aðilar að 18. september 2015 07:46
Ísraelskur ríkisborgari biður stöðumælaverði um að sekta sig ekki Bíleigandi bað stöðumælaverði um að virða það að hann sé ísraelskur ríkisborgari, og því megi þeir ekki sekta hann fyrir stöðubrot. 18. september 2015 14:57
Vörurnar sem koma til greina í sniðgöngu borgarinnar "Almennt er viðskiptabann þannig að þá á það við um ísraelskar vörur, svo getur vel verið að það þróist eitthvað áfram.“ 17. september 2015 08:46
„Mátti auðvitað búast við viðbrögðum“ Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hörð viðbrögð við ákvörðun borgarinnar um að sniðganga vörur frá Ísrael ekki hafa komið sér á óvart. Unnið sé að því að útfæra ákvörðina eins vel og hægt sé. 18. september 2015 12:58