Tónlist | 11. maí 2012 10:39

Nadia - Passaðu þig

Nadia boðar til byltingar í rappheimum á Íslandi. Hún er að senda frá sér sitt fyrsta lag þar sem hún beinir því til rappara sem ala á kvenfyrirlitningu, að passa sig.

Nýlega fékk hún til liðs við sig Redd lights, Alvíru og leikstjórann Eilíf Örn Þrastarson til að gera ögrandi myndband við ekki síður ögrandi textann, sem hún samdi sjálf, við rapplagið „Passaðu þig."

„Textinn er í raun bara eitt stórt fokk-jú-merki til allra rapparanna sem hafa verið að rappa um konur og hlutgera þær og vera með kvenfyrirlitningu í textunum sínum," segir Nadia, sem hefur jafnan mörg járn í eldinum, er Íslandsmeistari í magadansi, uppistandari og barþjónn.

Henni finnst rappsenan vera of karllæg. „Það er bara svo rosalega mikið sem gengur út á að reykja gras, ríða stelpum og í raun bara hlutgera þær þannig, að bara tala um einn líkamspart af þeim, og þannig er þetta líka í myndböndunum," segir hún. Meðal áhrifavalda Nadiu er hin umdeilda MIA, söngkonan Lauryn Hill og hin íslenska Cell 7 sem margir þekkja betur sem Rögnu úr Subterranean.

Hún hefur lengi hlustað á rapp en blöskrar margir rapptextar. „Þetta byrjaði þannig að ég fékk lánaðan iPod hjá 15 ára stelpu. Hún var með fullt af íslensku rappi og mér hreinlega blöskraði svolítið við að hlusta á textana, og að það séu fimmtán ára krakkar, og jafnvel yngri, sem eru að hlusta á þetta," segir Nadia. „Menningin elur líka upp börn"

Henni finnst mikilvægt að tónlistarmenn sýni ábyrgð. „Þessir rapparar koma oft fram og segja að þeir séu ekki að ala upp börnin, foreldrarnir geri það. Mér finnst samt að það eigi að taka einhverja ábyrgð því poppmenning er svo áhrifarmikil. Menningin elur líka upp börn," segir hún.

  • Nýjast
  • Fréttir
  • Heilir fréttatímar
  • Stakar fréttir
  • Kosningar 2013
  • Veðurfréttir
  • Bílar
  • Klinkið
  • Íþróttir
  • Aðrar íþróttir
  • Enski boltinn
  • Formúla 1
  • Fótbolti
  • Golf
  • Handbolti
  • Heilir fréttatímar
  • Körfubolti
  • ÓL 2012
  • Stakar íþróttafréttir
  • Sunnudagsmessan
  • Ísland í dag
  • Heilir þættir
  • Jólastjarnan
  • Nærmyndir
  • Stök innslög
  • Lífið
  • Entertainment tonight
  • First Try Fail Mondays
  • Fólk í fréttum
  • Grænn apríl
  • Umhverfis jörðina á 80 dögum
  • Stöð 2
  • Ameríski draumurinn
  • Auddi & Sveppi
  • Beint frá býli
  • Evrópski draumurinn
  • Fóstbræður
  • Game Tíví
  • Hamingjan sanna
  • Heimsendir
  • Heimsókn
  • Hlemmavídeó
  • Klassískt efni
  • Kompás
  • Kryddsíld Stöðvar 2
  • Ljósvakavíkingar
  • Logi í beinni
  • Mannasiðir Gillz
  • Mannshvörf
  • Marteinn Mosdal
  • Mér er gamanmál
  • Mið Ísland
  • Neyðarlínan
  • Rauða nefið
  • Sjálfstætt fólk
  • Spaugstofan
  • Spurningabomban
  • Steindinn okkar
  • Stelpurnar
  • Stöð 2 ýmislegt
  • Svínasúpan
  • Söngkeppni framhaldsskólanna
  • Tveir + Sex
  • Tvíhöfði
  • Tvímælalaust
  • Týnda kynslóðin
  • Um land allt
  • Bíó
  • Erlendar kvikmyndir
  • Íslenskar kvikmyndir
  • Sjáðu
  • Tölvuleikir
  • Barnaefni
  • Alfinnur álfakonungur
  • Dísa ljósálfur
  • Fjölskyldudagur 365
  • Matur
  • Gott að borða
  • Jói fel
  • Léttir réttir Rikku
  • Vala og Solla
  • Tónlist
  • Popp
  • FM TV
  • Betri stofan
  • Eldhúspartý 2012
  • FM95BLÖ TV
  • Íslenski listinn TV
  • Magasín TV
  • Bylgjan TV
  • Harmageddon TV
Forsíða / Klippur / Spilari / Nadia - Passaðu þig
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000