Heilsa

Sannleikurinn um sykur afhjúpaður

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Það hefur komið betur í ljós síðustu ár að sykur hafi mun verri áhrif á líkama okkar en áður var talið og að hann geti jafnvel verið helsta ástæða margra lífstílssjúkdóma.

Til þess að afhjúpa sannleikann um sykur gerði fréttakonan Gillian Findlay úttekt um málið í kanadíska fréttaþættinum The Fifth Estate á sjónvarpsstöðinni CBC.

Hún greinir frá helstu rannsóknum á afleiðingum sykurneyslu og leitar eftir viðbrögðum matariðnarins við niðurstöðum rannsóknanna, sem eru vægast sagt óhugnalegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×