Enski boltinn

Sanchez og Skytturnar niðurlægðu West Ham | Sjáðu mörkin

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Skytturnar áttu í engum vandræðum með nágranna sína í West Ham í lokaleik dagsins í enska boltanum en Alexis Sanchez skoraði þrjú og lagði upp eitt í 5-1 sigri Arsenal.

Sanchez lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Mesut Özil um miðbik fyrri hálfleiks og leiddi Arsenal 1-0 í hálfleik. Sanchez bætti sjálfur við þremur mörkum í seinni hálfleik en Alex Oxlade-Chamberlain bætti við einu marki.

Sanchez kom Arsenal 2-0 yfir með stórkostlegu marki eftir einleik en stuttu síðar skoraði hann annað mark sitt og þriðja mark Arsenal af 20 metra færi með langskoti.

Andy Carroll virtist veita West Ham líflínu þegar hann skallaði boltann í netið á 83. mínútu en Chamberlain var fljótur að svara fyrir Arsenal áður en Sanchez fullkomnaði þrennuna á 86. mínútu.

Chamberlain fékk færi til þess að bæta við marki en það þurfti ekki til. Sigurinn var löngu kominn í höfn og en á sama tíma neyðarlegt tap West Ham gegn nágrönnunum komið á hreint.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×