Viðskipti innlent

Samkomuleg gert um kaup Skinneyjar-Þinganes á Auðbjörgu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Skinney-Þinganes áætlar að vera með starfsemi bæði á Höfn í Hornafirði sem og á Þorlákshöfn.
Skinney-Þinganes áætlar að vera með starfsemi bæði á Höfn í Hornafirði sem og á Þorlákshöfn. vísir/pjetur
Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði hefur keypt öll hlutabréf í Auðbjörgu hf. á Þorlákshöfn. Samkomulag um kaupin hefur verið undirritað en það er gert meðal annars með fyrirvörum um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Ef af kaupunum verður mun Skinney-Þinganes bæði vera með starfsemi á Höfn og í Þorlákshöfn.

„Með þessu hyggst Skinney – Þinganes hf. styrkja sig í sessi sem eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og treysta enn frekar fjölbreyttan rekstur í útgerð, fiskvinnslu og sölu sem byggst hefur upp á undanförnum árum.

Auðbjörg ehf. hefur frá stofnun árið 1970, verið með starfsemi í Þorlákshöfn. Fyrirtækið hefur undanfarin um tuttugu og fimm ár keypt skip og aflaheimildir til að styrkja rekstur fyrirtækisins. Þrátt fyrir kaup veiðiheimilda hefur fyrirtækinu ekki tekist að halda í við skerðingu á þeim veiðiheimildum er fyrirtækið ræður yfir. Það er mat eigenda að rétt sé og tímabært að koma fyrirtækinu í hendur traustra aðila sem hafa það að markmiði að halda áfram starfsemi fyrirtækisins í Þorlákshöfn,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×