Samfylking "stærsti taparinn“ á landsvísu en gæti unnið stórsigur í borginni Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. maí 2014 07:00 Fundurinn fer fram í Lögbergi í dag. vísir/gva
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, segir aðra mynd blasa við þegar fylgi Samfylkingingarinnar í Reykjavík er borið saman við fylgi flokksins í mörgum af stærstu sveitarfélögum landsins. Grétar fjallar um komandi sveitarstjórnarkosningar á hádegisfundi Félags stjórnmálafræðinga í Lögbergi í dag. Hann fer yfir niðurstöður síðustu kosninga og sveiflur í fylgi flokka. „Það hafa verið gerðar kannanir í þrettán af fjórtán stærstu sveitarfélögum landsins og þegar horft er yfir heildina eru svona ákveðnar línur í því hvert stefnir. Það virðist vera sem Sjálstæðisflokkur og Framsókn séu í þessum stærstu sveitarfélögum samanlagt nokkurn veginn að halda velli frá 2010. Þess ber að geta að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði mjög víða 2010.“ Grétar segir að svo virðist sem Samfylkingin ætli aðrar kosningarnar í röð að verða „stærsti taparinn“. „En að þessu sögðu verðum við að horfa til þess að svona eins og ég er búinn að vera að lýsa Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni að þannig er ástandið ekki í Reykjavík. Þegar við horfum yfir heildina blasir við önnur mynd en ef við horfum á Reykjavík eina. Þvert á allt annað er Samfylkingin á leið að fara að vinna stóran sigur og Sjálfstæðisflokkurinn að fara að tapa frekar illa, miðað við þessar tölur. Það hlýtur að verða að túlka þetta þannig að þetta hafi eitthvað með forystumann þeirra í Reykjavík að gera, Dag B. Eggertsson. Það er bara ekki hægt að rýna öðruvísi í þetta.“ Grétar segir Bjarta framtíð ekki ná að halda sex mönnum Besta flokksins í Reykjavík og mælast um þessar mundir með þrjá menn í borginni. Hins vegar mælist flokkurinn með ágætis fylgi í mörgum af þeim sveitarfélögum sem hann bjóði fram í og gæti staðið uppi með fimmtán sveitastjórnarmenn eftir kosningar.Allar fréttir af sveitarstjórnarkosningunum 2014 má nálgast á Kosningavef Vísis, visir.is/kosningar.
Mest lesið Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Innlent Fundu Guð í App store Erlent Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Innlent Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Innlent Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem eingangra sig félagslega Innlent Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Innlent Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Erlent Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Innlent Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Innlent SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Innlent Fleiri fréttir Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem eingangra sig félagslega Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Björn strax hættur í íþróttaráði: „Þetta var bara prinsippmál“ SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Tilkynntur til lögreglu Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Óveðurský yfir Sólheimum og deilt á ríkisendurskoðanda Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Ekkert bólaði á ræðumanni Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Lýsti sjálfsvígshugsunum í pontu Alþingis Sjá meira