Erlent

Sameinast gegn hatri og fordómum í Útey

Heimir Már Pétursson skrifar
Í dag var opnuð fræðslumiðstöð í Osló um voðaverkin í borginni og í Útey þegar sjötíu og sjö manns voru myrtir þennan dag fyrir fjórum árum. Forsætisráðherra Noregs segir miðstöðinni ætlað að vinna gegn hatri, ofbeldi og hryðjuverkum. Forseti evrópuráðsins vill að dagurinn verði alþjóðlegur dagur gegn hatursglæpum.

Norðmenn vöknuðu upp við vondan draum hinn 22. júlí fyrir fjórum árum þegar mestu hryðjuverk í sögu Norðurlanda á friðartímum voru framin. Átta manns féllu í sprengjutilræði Anders Breivik á stjórnarráðsbyggingar í Osló og síðar um daginn skaut hann 69 manns til bana í Útey, aðallega ungt fólk í ungliðahreyfingu jafnaðarmanna, sem hann lagði sérstakt hatur á.

Erna Sólberg, forsætisráðherra Noregs, sagði við minningarathöfn við stjórnarráðið í dag að enginn nema þeir sem misst hefðu börnin sín, systkini eða nána vini skildi hvað ættingjar hinna látnu hefðu mátt þola.

„Hér á eftir opnum við „22. júlí-miðstöðina.“ Þar er með raunsönnum hætti sögð sagan af því hvað gerðist þennan dag árið 2011. Í sérherbergi í miðstöðinni eru þau sem misstu líf sitt heiðruð. Miðstöðin mun dreifa vitneskju til að hjálpa okkur við að vinna gegn hatri, ofbeldi og hryðjuverkum,“ sagði Solberg.

Anne Brasseur, forseti þingmannahóps Evrópuráðsins, ávarpaði einnig samkomuna í Osló í dag. Hún sagði að þau hryðjuverk sem framin hefðu verið frá hryðjuverkunum í Osló sýndu hvers konar voðaverk mannskepnan gæti framið.

„Fyrir hönd þingmannahóps Evrópuráðsins lýsi ég yfir einörðum stuðningi við það að 22. júlí verði Evrópudagur tileinkaður fórnarlömbum hatursglæpa. Til að sýna samstöðu okkar með öllum þeim sem hafa mátt þola hatursglæpi. Einnig til að kynna sameiginlegt átak okkar gegn hatri og skorti á umburðarlindi,“ sagði Brasseur.

Minningarathöfn var einnig haldin í Útey þar sem hinna látnu var minnst með einnar mínútu þögn. Solberg forsætisráðherra var við athöfnina ásamt Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, sem var forsætisráðherra þegar hryðjuverkin voru framin.

„Það er enginn fæddur til að hata. Hatur er búið til af manninum. Við getum ekki leitt hatur og kynþáttahatur,“ sagði Mani Hussaini, formaður ungra jafnaðarmanna, meðal annars við athöfnina.

Jonas Gahr Störe, formaður Verkamannaflokksins, sagði sárt að koma til Úteyjar en það væri líka gott að koma saman og minnast hinna látnu.

„Eins og Mani sagði svo réttilega hér á undan þá er það ekki rétt að tíminn lækni öll sár. En tíminn gerir eitthvað fyrir okkur. Við getum valið að velja okkur leið til vonar saman. Með sársaukanum getum við líka leitað þeirra augnablika sem fela í sér ljúfar minningar sem hjálpa og hugga,“ sagði Jonas Gahr Störe í Útey í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×