Erlent

Særðust í skotárás vestur af París

Atli Ísleifsson skrifar
Grunaður árásarmaður ku vera góðkunningi lögreglunnar.
Grunaður árásarmaður ku vera góðkunningi lögreglunnar. Vísir/Getty
Tveir eru sagðir hafa særst alvarlega eftir skotárás fyrir utan matvöruverslun í Port-Marly, vestur af frönsku höfuðborginni París, í dag.

Franskir fjölmiðlar segja manninn hafa hafið skothríðina um hádegisbil og síðan flúið af vettvangi.

Þeir sem særðust voru viðskiptavinir matvöruverslunarinnar og virðast fórnarlömbin hafa verið valin af handahófi.

Grunaður árásarmaður ku vera góðkunningi lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×