Erlent

Rússneskur verðlaunakafari talinn af

Atli Ísleifsson skrifar
Natalia Molchanova átti 41 heimsmet í greininni.
Natalia Molchanova átti 41 heimsmet í greininni. Vísir/AFP
Óttast er að Natalia Molchanova, 53 ára rússneskur verðlaunakafari, hafi drukknað eftir að hún skilaði sér ekki aftur upp á yfirborðið þegar hún var við köfun á Spáni um helgina.

Molchanova, sem á 41 mismunandi heimsmet í köfun, var að kafa á eynni Formentera, skammt frá Ibiza, og er talið að straumar hafi hrifið hana á brott. Hennar er enn leitað.

Molchanova var keppnissundkona á sínum yngri árum en tók síðar upp köfun án öndunarbúnaðar (e. freediving).

Í tilkynningu frá fjölskyldu hennar kemur fram að hún hafi getað haldið niðri í sér andanum í níu mínútur, kafað á 101 metra dýpi með blöðku og synt 234 metra í kafi með blöðku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×