Handbolti

Rúnar: Vantaði að úrslitaskotið færi á réttan stað

Arnar Björnsson skrifar
„Fyrst og fremst svekkelsi. Við fórum illa að ráði okkar, vorum með fimm marka forystu þegar korter var eftir," segir Rúnar Kárason eftir leikinn gegn Makedóníu.

„Það vantaði bara að úrslitaboltinn fari á kórréttan stað. Við vorum að stimpla okkur í gegn, grípum ekki boltann eða sending kemur of djúpt. Við erum ekki að skora og fáum ekki amk tvö víti sem við hefðum átt að fá. Makedónía gengur á lagið og þeir fá „mómentið“ með sér og hlutirnir fara að falla svolítið fyrir þá. Við dettum í einhvern hlutlausan gír í sókninni. Á svona úrslitastundum er alltaf erfiðara að taka ákvarðanir að skjóta. Hættan er á að vörnin og markvarslan vinni saman. Bara útrúlega svekkjandi að við skyldum ekki taka þriðja sætið.“

Rúnar var markahæstur í íslenska liðinu en hann skoraði sjö mörk, þar af fimm í fyrri hálfleik.

„Upplifunin var ekki að byrjunin væri alslæm. Ég kemst í fínt færi en skotið er lélegt. Það tók okkur smá tíma að stimpla okkur inn en mér fannst við samt vera að gera réttu hlutina. Um leið og við fylgdum sannfæringunni og urðum aðeins einbeittari þá fóru hlutirnir að ganga. Við vorum búnir að búa okkur undir það að skjóta yfir völlinn og Bjarki Már skoraði tvisvar frá miðju. Ég held að við getum verið sáttir með hvernig við leystum þetta sjö á móti sex dæmi.“

Þá sást ástæðu til þess að blaðamannafundinum að þakka Lino Cervar og strákunum hans fyrir að þeir sóttu ekki í lokin.

„Þeir höfðu í rauninni ekkert að sækja því þeir voru komnir með þriðja sætið. Í rauninni bara áhætta fyrir þá að fara að sækja á markið. Að sama skapi hefði það verið ömurlegt fyrir okkur því þá hefðum við þurft að fara til Brest sem mér skilst á Ragnari Óskarssyni sé alveg hræðilegur staður. Eins líka að þurfa að keppa í forsetabikarnum er ekki alveg eins sexí og að mæta Frökkum í fullri höll. Við ætlum bara að massa það dæmi og láta Frakka byrja að titra aðeins í seinni hálfleik og þá er bara allt mögulegt í þessu,“ sagði Rúnar Kárason svekktur með jafnteflið.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Geir: Var á leið að borðinu að taka leikhlé

"Akkúrat núna er ég ókátur með að hafa ekki unnið,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en þó svo lið hans hafi kastað frá sér sigrinum er það komið í 16-liða úrslit.

Umfjöllun: Makedónía - Ísland 27-27 | Strákarnir köstuðu frá sér sigrinum

Strákarnir okkar munu mæta Frökkum í Lille á laugardag en ekki Norðmönnum í Albertville eftir að hafa kastað frá sér sigri gegn Makedóníu. Algert hrun á lokamínútunum og liðið mátti jafnvel telja sig heppið að hafa sloppið með jafntefli. En liðið er komið áfram og á það var stefnt.

Lino Cervar: Ég er með sterkt hjarta

Lino Cervar, þjálfari Makedóníu, var sáttur eftir jafntefli á móti Íslandi í Metz á HM í handbolta í kvöld en stigið tryggði Makedóníu þriðja sætið í riðlinum og forðaði þeim frá því að mæta Frökkum í sextán liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×