Golf

Rory McIlroy sigraði á heimsmótinu í holukeppni

Rory hafði ríka ástæðu til að fagna í gær.
Rory hafði ríka ástæðu til að fagna í gær. Getty
Rory McIlroy sigraði í gær á Cadillac heimsmótinu í holukeppni en hann lagði Bandaríkjamanninn Gary Woodland af velli í úrslitaleiknum.

McIlroy hafði tvisvar þurft að fara í bráðabana til þess að komast áfram í mótinu, á móti Billy Horschel og Paul Casey, en það þurfti ekki í úrslitaleiknum þar sem hann náði forystunni snemma og lét hana aldrei af hendi.

Þetta er annað mótið í ár sem McIlroy vinnur og það fyrsta á PGA-mótaröðinni en hann var að vonum ánægður með sigurinn.

Ég spilaði mjög stöðugt golf allt mótið og gaf lítil færi á mér. Mér tókst alltaf að koma til baka þegar að einhver sótti að mér og ég gæti ekki verið ánægðari með sigurinn, þetta er í annað sinn sem ég vinn á heimsmóti í golfi og það er alltaf sérstakt."

Fyrir sigurinn fékk McIlroy rúmlega 190 milljónir króna en Woodland sem þurfti að sætta sig við annað sætið getur huggað sig við rúmlega 120 milljóna króna verðlaunafé sem verður að teljast ágætt fyrir fimm daga vinnu.

Englendingurinn Danny Willett tryggði sér þriðja sætið með því að sigra Jim Furyk í spennandi leik en fyrir það fékk hann 85 milljón krónur sem ætti að tryggja honum þátttökurétt á PGA-mótaröðinni í náinni framtíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×