Handbolti

Róbert skoraði mark í kvöld sem minnti á mark Guðjóns Vals 2001 | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Róbert Sigurðsson var í erfiðri stöðu en skoraði samt.
Róbert Sigurðsson var í erfiðri stöðu en skoraði samt. Mynd/Samsett
Akureyringurinn Róbert Sigurðsson átti flottan leik í kvöld þegar Akureyri vann sex marka sigur á Val, 27-21, í fyrsta leik liðanna eftir HM-frí.

Róbert Sigurðsson var öflugur í vörn Akureyrarliðsins allan leikinn en í þeim fyrri fór hann líka á kostum í sóknarleiknum.

Róbert Sigurðsson skoraði þá fjögur mörk þar af eitt þeirra beint úr aukakasti þegar leiktíminn var runninn út.

Markið hjá Róberti minnti á frægt mark Guðjóns Vals Sigurðssonar í úrslitakeppninni árið 2001. Guðjón Valur skoraði það einmitt beint úr aukaspyrnu úr horninu í KA-heimilinu en reyndar hinum megin á vellinum.

Strákurinn fagnaði markinu vel þótt í fyrstu virtist það koma honum svolítið á óvart að boltinn hafi farið í markið.

Hér fyrir neðan má sjá myndband með þessu flotta marki hjá stráknum.

Ágúst Stefánsson, KA-maður í Reykjavík, sem stundar nám á tæknideild í Kvikmyndaskóla Íslands, setti markið inn á Twitter-síðu sína, stoltur af sínum manni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×