Rjúpa líka í forrétt

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Oddný Elín Magnadóttir.
Oddný Elín Magnadóttir.

Oddný Elín Magnadóttir, húsfrú á Kambsvegi, segir fjölskyldu sína fólk hefða. Í takt við það hefur hún í tólf ár haft grafna rjúpu í forrétt á aðfangadagskvöld.

Auk grafinnar rjúpu í forrétt samanstendur jólamáltíðin af rjúpu, framreiddri á gamaldags máta, og ananasfrómas í eftirrétt.



Uppskriftirnar má sjá neđar í greininni. Mmmm...
Uppskriftirnar má sjá neđar í greininni. Mmmm...

„Við erum ekki mikið fyrir að breyta og erum fastheldin á alls kyns hefðir. Ég hef bara einu sinni breytt út af vananum með eftirréttinn; eyddi heilum degi í að gera Ris a la mande með sósu og öllu og eyðilagði jólin fyrir eiginmanninum og mömmu hans. Það var ekki reynt aftur," segir Oddný.

Uppskriftina að gröfnu rjúpunni segir Oddný einnig mjög góða í að grafa gæsabringur og hreindýrafillet.

Slíkt hafi hún gert fyrir stærri veislur og alltaf sé það jafn vinsælt. Gott er að bera forréttinn fram með ristuðu brauði. - jma


Fleiri fréttir - Jólavefur

Ţú ert hér: Forsíđa / Jólavefur / Rjúpa líka í forrétt