Innlent

Ristilhreinsun Jónínu sögð vera gagnslaus

Jónína Benediktsdóttir býður upp á ristilskolun að pólskri fyrirmynd í meðferðarstöð sinni Detox Jónínu Ben sem er til húsa á Keflavíkurflugvelli.
Jónína Benediktsdóttir býður upp á ristilskolun að pólskri fyrirmynd í meðferðarstöð sinni Detox Jónínu Ben sem er til húsa á Keflavíkurflugvelli.
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir varar Jónínu Benediktsdóttur við því að ristilhreinsunarmeðferð hennar geti stangast á við lög um skottulækningar.

Landlæknisembættið tók saman greinargerð vegna „svokallaðrar „Detox-læknismeðferðar" eða „Detox-heilsumeðferðar" á vegum Jónínu Benediktsdóttur íþróttafræðings.

Kveikjan er sögð fjöldi kvartana og ábendinga.

Fram kemur í greinargerðinni að Jónína hafi í október 2008 viljað hitta Matthías aðstoðarlandlækni til að ræða þá hugmynd að breyta einhverri af heilsustofnunum ríkisins í Detox-læknismeðferðarstöð.

Áður hafði Jónína sent Matthíasi bréf. „Matthías þröngsýni þín segir mér að þú sért starfi þínu ekki vaxinn," skrifaði Jónína og bætti við: „Ef þú heldur að læknar hafi einkarétt á sjúkdómum fólks þá er það rangt. Fólkið vill sjálft lækna sig. Má það?"

Í bréfi til Jónínu kveðst Matthías „ekki bjartsýnn" á þátttöku ríkisins í þjónustu sem ekki byggist á miklum vísindarannsóknum. „Tilfinning okkar nægir ekki, enda hefur til dæmis komið til okkar fólk sem telur sig geta læknað allt frá áfengissýki og einhverfu með sérstökum aðferðum," skrifar hann.

Í greinargerðinni segir að Jónína hafi gert athugasemd við það að fulltrúar landlæknis hafi ekki komið og skoðað meðferðarstöðina eða fræðst sérstaklega um „Detox-prógrammið".

Matthías segir hins vegar að auðvelt sé að kynna sér meðferðina án þess að koma á staðinn, því enginn skortur sé á auglýsingaefni. „Engin ástæða er til að eftirlitsstofnanir reyni alla meðferð á eigin skrokki," segir hann.

Þá tekur Matthías fram að þótt ráða hafi mátt af auglýsingum að um læknismeðferð væri að ræða hafi Jónína ekki gert formlegt tilkall til þeirrar skilgreiningar. Starfsemin sé því í raun ekki undir eftirliti landlæknis. Embættið hafi hins vegar skyldur við almenning. „Megingagnrýni á hina svokölluðu Detox-meðferð varðar ristilhreinsanir.

Enginn fótur er fyrir gagnsemi þeirrar meðferðar. Líkaminn sér að jafnaði sjálfur um að hreinsa út eiturefni. Sé haldið fram að slíkt sé hægt með því að skola neðsta hluta ristilsins þarf að sýna fram á vísindarannsóknir sem styðja slíkt, en þær hafa ekki komið fram," segir í greinargerðinni.

Í bréfi til Matthíasar í desember 2009 frábiður Jónína sér afskipti hans af detox-stöðinni: „Ef þú og þetta fólk heldur áfram þessu einelti á hendur mér, starfsfólki mínu og fyrirtæki mun ég kæra þig og þau til dómstóla fyrir ítrekaðan atvinnuróg."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×