Erlent

Risakónguló lék mús grátt í Ástralíu

Atli Ísleifsson skrifar
Kóngulóin Hermie og músin.
Kóngulóin Hermie og músin.
Ástrali birti um helgina myndband þar sem sjá má risakónguló leika mús grátt þar sem hún fer um á hlið ísskáps á heimili nágranna mannsins.

Kóngulóin sést þar halda um höfuð músarinnar og fara lárétt yfir hlið ísskápsins.

Í frétt Independent kemur fram að Ástralinn Jason Womal, sem býr í Coppabella í Queensland, hafi gefið kóngulónni nafnið Hermie og reki hún nú sína eigin meindýraeyðingarstöð í bænum.

Sjá má myndbandið að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×