Fótbolti

Rikki G missti sig er Zlatan skoraði mark kvöldsins

Zlatan Ibrahimovic skoraði mark í kvöld sem hann mun örugglega seint gleyma.

Markið kom strax í upphafi seinni hálfleiks í landsleik Moldóva og Svía. Kærulaus markvörður Moldóva náði ekki að spyrna fram hjá Zlatan sem skallaði útspark hans í netið.

Viðbrögð Zlatan eru ótrúleg en honum tekst að stýra boltanum í markið á ótrúlegan hátt. Viðbrögð Rikka G, sem lýsti leiknum, voru ekki síðri.

Sjá má þessa snilld í spilaranum hér að ofan. Svíþjóð vann leikinn, 0-2. Zlatan skoraði líka hitt markið.


Tengdar fréttir

Draumabyrjun hjá Harry Kane

Landsliðsferill Harry Kane byrjaði með ótrúlegum látum. Það tók hann 80 sekúndur að skora sitt fyrsta landsliðsmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×