Ríkisstjórnin vill að Ísland verði stofnaðili að fjárfestingabanka fyrir Asíu ingvar haraldsson skrifar 31. mars 2015 17:33 Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að óska eftir að Ísland gerðist stofnaðili að AIIB. vísir/vilhelm
Ísland mun óska þess að gerast stofnaðili að nýjum fjárfestingabanka fyrir Asíu sem er í burðarliðnum. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag. Fjöldi ríkja er aðili að bankanum, þar með talin flest Evrópuríki. Ekki liggur fyrir hvert framlag Íslands til bankans verður en gert er ráð fyrir að heildarstofnfé bankans nemi allt að 100 milljörðum bandaríkjadala. Samningaviðræður milli stofnaðila um endanlega stofnsetningu bankans eru framundan en stefnt er að því að þeim ljúki fyrir árslok. Ljóst er að höfuðstöðvar bankans verða í Peking en hann mun bera nafnið Asian Infrastructure Investment Bank (AIIB). Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að það sé mat ríkisstjórnarinnar að aðild að fjárfestingabankanum muni styrkja enn frekar góð samskipti Íslands og Asíuríkja og styðja við nýja vaxtarbrodda á viðskiptasviðinu. „Asía er sá hluti efnahagskerfis heimsins sem vex hvað hraðast. Fyrir liggur að í álfunni hefur og mun eiga sér stað gríðarleg uppbygging samgöngukerfa, orkukerfa, fjarskiptakerfa o. fl. Starfsemi AIIB mun styðja við starfsemi fjölþjóðlegra fjármálastofnana sem þegar sinna þróun og fjármögnun innviðauppbyggingar, svo sem Alþjóðbankans og Þróunarbanka Asíu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru Sjá meira