Innlent

Ríkissaksóknari fundar um meintar símhleranir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Frá fundinum í morgun.
Frá fundinum í morgun. vísir/gva
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari mætti á fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um klukkan hálf tíu í morgun. Tilefni fundarins er umræða um símhleranir.

Formaður nefndarinnar, Unnur Brá Konráðsdóttir, boðaði Sigríði á fundinn til að fjalla um það hvort eftirliti með símhlerunum sé ábótavant og vill nefndin fullvissa sig um að farið sé að reglum. Fulltrúar dómsmálaráðuneytisins og lögmannafélagsins eru á meðal þeirra sem sóttu fundinn ásamt Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis- og dómsmálaráðherra, hyggst óska þess að réttarfarsnefnd fari yfir hvort sérstakur saksóknari hafi farið að reglum varðandi símhleranir. Þá útilokar hann ekki að sérstök rannsóknarnefnd verði sett á laggirnar til að komast að hinu sanna.


Tengdar fréttir

Vill svör um hleranir

Tveir þingmenn Pírata hafa lagt fram fjölmargar spurningar sem snúa að rannsóknum á einstaklingum

Ríkissaksóknari verður að skýra afstöðu sína

Jónas Þór Guðmundsson, formaður Lögmannafélagsins sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að ríkissaksóknari yrði að skýra afstöðu sína í málinu, og hvað hann hefði fengið upplýst í greinargerð Jóns Óttars frá 2012 þar sem hann lýsir hinum ólöglegu hlerunum. Lögmenn hafi lengi haft áhyggjur af slíkum hlerunum.

Svarar ekki hvers vegna hleranir voru ekki rannsakaðar fyrr

Ríkissaksóknari svarar því ekki í yfirlýsingu um meðferð rannsóknargagna hjá embætti sérstaks saksóknara hvers vegna embætti ríkissaksóknara hafi ekki fylgt eftir ábendingu um hleranir á símtölum verjenda og sakborninga fyrr á árinu 2012. Fyrrverandi lögreglumaður upplýsti um hleranirnar í greinargerð til embættisins þegar hann var sjálfur til rannsóknar.

Hunsar ósk um fund um hleranir lögreglu

Formaður Lögmannafélags Íslands fagnar því að ráðherra láti skoða hvort rétt sé staðið að hlerunum við rannsókn sakamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×