Golf

Rickie Fowler reynslunni ríkari eftir viðburðaríkt ár

Kári Örn Hinriksson skrifar
Rickie Fowler á Opna breska meistaramótinu í sumar.
Rickie Fowler á Opna breska meistaramótinu í sumar. AP
Rickie Fowler hefur á undanförnum árum skotist upp á stjörnuhimininn í golfinu en þessi vinsæli kylfingur sýndi og sannaði í ár að hann er meðal þeirra allra bestu með mörgum frábærum frammistöðum.

Fowler endaði í níunda sæti í Fed-Ex bikarnum 2014 og á árinu vann hann sér inn rúmlega fimm milljónir dollara í verðlaunafé. Fowler bætti sig mikið á milli ára í púttum, upphafshöggum og nánast allri tölfræði og var oft í baráttunni um sigur í risamótum en hann endaði þó árið án þess að sigra í atvinnumannamóti.

Það minnir á hversu erfitt það er að sigra mót meðal þeirra bestu en spurður út í eitt högg á árinu sem hann hefði viljað slá upp á nýtt þá segir Fowler að það sé upphafshöggið á 14. holu, á lokahringnum á PGA meistaramótinu sem fram fór á Valhalla.

Það var þetta fimmjárn sem fór með mig, ég missti það til hægri á 14.holu þegar að ég var í forystunni og fékk skolla.“

Fowler endaði hringinn með því að fá par á restina af holunum en fugl hjá Rory McIlroy á 17. holu tryggði Norður-Íranum sigurinn í þessu sögufræga móti.

Ég hugsa til baka og vildi óska að ég hefði sveiflað af meira öryggi á 14. holu, golfsagan er skrifuð á augnablikum sem þessum. Ég er samt viss um að ég á eftir að vera í baráttunni á lokadegi í risamóti aftur á ferlinum og ég verð reynslunni ríkari þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×