Innlent

Reynslubolti á spítalanum hendir inn handklæðinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
„Ákvörðunin var afar erfið en ástæða uppsagnar minnar er augljós þeim sem til þekkja,“ segir Einar Páll.
„Ákvörðunin var afar erfið en ástæða uppsagnar minnar er augljós þeim sem til þekkja,“ segir Einar Páll. Vísir/Vilhelm
„Mér er því miður fullkomlega ljóst að Landspítalinn og heilbrigðiskerfið allt er að holast innan frá og molnar nú hugsanlega niður með uppsögnum þeirra sem sjá að ekki verður lengur við ástandið unað,“ segir svæfingarlæknirinn Einar Páll Indriðason sem sagði upp störfum á Landspítalanum í morgun.

„Já, ég sagði upp í dag,“ segir Einar Páll í samtali við Vísi. Hann hefur starfað sem svæfingar- og gjörgæslulæknir á Landspítalanum í Fossvogi frá því árið 2001. Í morgun var hans fyrsta verk að afhenda yfirmanni sínum uppsagnarbréf.

„Maður hefur velt þessu mikið fyrir sér og það er auðvitað með mjög miklum trega sem maður hættir,“ segir Einar. Honum þyki vænt um vinnustað sinn og elski vinnuna.

„Ákvörðunin var afar erfið en ástæða uppsagnar minnar er augljós þeim sem til þekkja. Ofan á sífelldar og óraunhæfar sparnaðarkröfur yfirvalda hafa laun okkar lækna á Landspítalanum ekki hækkað sem skildi og því tel ég mig ekki geta unnið á þeim töxtum sem þar bjóðast. Að auki fást læknar ekki heim úr sérnámi enda launin hér ekki samkeppnishæf.“

Eðlileg launaleiðrétting lækna

Hávær orðrómur hefur verið undanfarnar vikur að fleiri svæfingarlæknar á Landspítalanum íhugi alvarlega að segja upp.

„Ég vil helst ekki tjá mig um hvað aðrir eru að hugsa. Þetta er mitt mál og mín ákvörðun,“ segir Einar en kona hans starfar einnig sem læknir. Vel komi til greina að flytja utan en það ætli hann ekki að íhuga af alvöru fyrr en eftir jól.

„Nú þegar við læknar förum fram á eðlilega launaleiðréttingu fáum við ekki samningsaðilann að borðinu með umboð til þess að semja á raunhæfum nótum. Það er því útlit fyrir að ekki náist fram eðlileg endurnýjun stétt okkar,“ segir Einar í Facebook-færslu til vina og vandamanna í dag.

Einar er á þriggja mánaða uppsagnafresti og verður uppsögnin því að veruleika þegar verkfallsaðgerðum lækna lýkur að óbreyttu í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×