Innlent

Reru yfir Indlandshaf og slógu met fyrir Ísland

Linda Blöndal skrifar
Þriðja og fjórða heimsmetið í kappróðri var sett fyrir Íslands hönd nú í ágúst. Siglingakappinn Fiann Paul setti fyrstu metin með leiðangri yfir Atlantshafið og nú með róðri yfir Indlandshaf sem hann segir hafa verið gríðarlega erfiða ferð, í samtali við fréttir Stöðvar tvö í kvöld.

Fiann siglir undir íslenskum fána og eru afrekin ekkert venjuleg en Fiann er með íslenskan ríkisborgararétt.  Þann 7. ágúst tóks honum ásamt áhöfn að róa 7200 kílómetra, frá Ástralíu til Afríku á 57 dögum og ellefu klukkustundum - á tveggja tonna bát sem er rétt fimmtán metra langur og tveggja metra breiður. Ferðin var farin þann 11.júní og komið var á leiðarenda nú í ágúst sl.



Fjórða heimsmetið 

Farin var lengsta leið yfir hafið en líka slegið hraðamet. Fjórða heimsmetið setti Fiann fyrir að eiga samtímis hraðamet í róðri yfir Atlantshafið frá árinu 2011. Indlandshafsróðurinn var mun erfiðari, tíu metra háar öldur ógnuðu róðramönnum, róa þurfti frá fellibyljum og breyta stefnu vegna hryðjuverkasamtaka við austurströnd Afríku og sjóræningja. Þá var kuldamet slegið á hafinu þennan tíma.



Nær sturlaðir af þreytu 

Margt fleira kom uppá sem ekki sást fyrir, til dæmis fóru einungis þrír ræðarar í stað átta síðasta helming ferðarinnar vegna óhappa og veikinda. Upplifun í slíkum háskaferðum eru þó eitt af því fáa sem er einstakt lífinu, segir Fiann. Ræðararnir voru á stundum nærri óráði sökum þreytu og fengu nánast ofskynjanir af örmögnun.

Ætlar að “klára” úthöfin 

Róður yfir Kyrrahafið er áætlað næsta vor og þar með hefur Fiann lokið róðri yfir úthöfin þrjú. Kyrrahafið er lengsta leiðin, 11 þúsund kílómetrar og áætlað að það taki 100 daga.   

Góðgerðarmál

Fiann stofnaði góðgerðarsjóð og hans fyrsta verkefni var að byggja grunnskóla á afskekktum stað í Himalajafjöllunum. Árlega sér skólinn 150 börnum fyrir menntun, segir í tilkynningu sem barst.

Linda Blöndal



Fleiri fréttir

Sjá meira


×