Formúla 1

Renault vill að lágmarki vinna fimm keppnir

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Red Bull þarf líklega að bera allan þungan af sigurvilja Renault. Hitt Renault drifna liðið er litla systurliðið Toro-Rosso.
Red Bull þarf líklega að bera allan þungan af sigurvilja Renault. Hitt Renault drifna liðið er litla systurliðið Toro-Rosso. Vísir/Getty
Renault vill vinna að lágmarki fimm keppnir og stefnir á að minnka aflmuninn á milli sín og Mercedes um helming fyrir fyrstu keppni.

Franski vélaframleiðandinn viðurkennir að í lok síðasta tímabils hafi Mercedes vélin verið um 60 hestöflum öflugari en Renault vélin. Renault stefnir á að munurinn verði um 30 hestöfl fyrir fyrstu keppnina í Ástralíu.

„Við vonumst til að geta helmingað bilið fyrir upphaf tímabilsins í Melbourne. Ólíkt Mercedes munum við hefja tímabilið með 2015 útgáfuna af vélinni okkar,“ sagði framkvæmdastjóri Renault, Cyril Abiteboul. Hann gaf í skyn að Mercedes myndi nota 2014 vélina í fyrstu keppnum ársins. Mercedes hefur hins vegar staðfest að liðið muni nota 2015 vél sína frá upphafi.

Abiteboul segir að Renault muni eiga um 10 þrónarinneignir eftir til að nota yfir tímabilið, þeir hafa þegar notað nokkurn fjölda þeirra til að þróa vélina yfir vetrar mánuðina.

„Við höfum notað um tvo þriðju af þróunarinneignum okkar til að breyta vélinni í ár. Mitt markmið er að vinna að minnsta kosti fimm keppnir í ár,“ bætti Abiteboul við.

Þróunarinneignir eru í heildina 66 í formúlu 1 vél. Sumir hlutar vélarinnar standa fyrir meira en aðrir, allt eftir mikilvægi þeirra. Mercedes, Renault og Ferrari fá inneign upp á 32 hvert. Liðin geta svo notað sína þróunarinneign til að breyta vélinni.


Tengdar fréttir

Marussia bjargað á elleftu stundu?

Tekist hefur að blása lífi í vonarglæður yfirmanna Marussia liðsins um að það takist að bjarga liðini. Hætt hefur verið við loka uppboð á eignum liðsins.

Ecclestone: Ég held að Hamilton verði meistari 2015

Bernie Ecclestone, formúlueinráður telur að Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari tryggji sér sinn þriðja titil í ár. Ecclestone segir að Hamilton sé "góður meistari“ fyrir íþróttina.

Honda má eftir allt þróa sína vél

Aðrir vélaframleiðendur höfðu fengið leyfi til að þróa sína vél á komandi tímabili. Nú má Honda taka þátt í þróunarstríðinu.

Vélaþróun leyfileg 2015, fyrir suma

Gloppótt reglugerð gerir það að verkum að breytingabannið sem lék Ferrari og Renault grátt í lok síðasta tímabils verður ekki til staðar í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×