Körfubolti

Reggie rekinn út úr húsi fyrir að kasta svitabandi Justins upp í stúku | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Reggie Dupree, bakvörður Keflavíkur í Dominos-deild karla í körfubolta, var rekinn út úr húsi í leik liðsins gegn Stjörunni í Ásgarði í kvöld fyrir að kasta svitabandi Justin Shouse, leikmanni Stjörnunnar, upp í stúku.

Shouse braut á Dupree í hraðaupphlaupi en eftir að búið var að dæma tók Keflvíkingurinn svitabandið af höfði Stjörnumannsins og endaði á því að kasta því upp í stúku við litla hrifningu dómara leiksins.

Fyrir þetta fékk Reggie reisupassann og var sendur út úr húsi. Hann fékk ekki að taka frekari þátt í leiknum en þetta gerðist þegar 1:14 voru eftir af fyrri hálfleik og staðan 39-36 fyrir heimamenn.

Keflvíkingar voru ekki ánægðir með dóminn en það breytti engu. Leik Reggie í kvöld lauk með þessu heimskulega atviki.

Þetta mál verður rætt í Domino's-Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport HD klukkan 22.00 í kvöld en þar má búast við snörpum umræðum Jóns Halldórs Eðvaldssonar og Fannars Ólafssonar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×