Erlent

Réðst á lögreglumenn með öxi að vopni

Mynd úr eftirlitsmyndavél sýnir árásarmanninn í þann mund er hann lætur til skarar skríða.
Mynd úr eftirlitsmyndavél sýnir árásarmanninn í þann mund er hann lætur til skarar skríða.
Lögreglumenn í New York skutu mann til bana í gær sem réðst að þeim vopnaður öxi. Árásin var gerð í verslunargötu í Queens hverfinu á háannatíma og særðist einn lögreglumannanna sem fyrir árásinni varð  alvarlega.

Ekki er ljóst hvað manninum gekk til eða hver hann er. Á öryggismyndavélum sést greinilega þegar maðurinn dregur litla öxi upp úr bakpoka sínum og ræðst með offorsi á fjóra lögreglumenn sem nýlega voru útskrifaðir úr lögregluskóla borgarinnar.

Einn þeirra fékk axarblaðið í höfuðið en félagar hans skutu manninn nokkrum skotum og særðu einnig konu sem átti leið hjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×