Körfubolti

Ragnar: Spennandi að sjá hvort það verða jafnmikil læti hérna og í Bosníu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnar Ágúst Nathanaelsson.
Ragnar Ágúst Nathanaelsson. Vísir/Daníel
Ragnar Ágúst Nathanaelsson gæti fengið stærra hlutverk en oft áður þegar Íslenska körfuboltalandsliðið spilar einn sinn mikilvægasta leik frá upphafi í kvöld. Bosníumenn koma þá í heimsókn í Laugardalshöll í lokaleik liðanna í undankeppni EM og íslenska liðið á möguleika á því að tryggja sér sæti á EM.

„Ég er gríðarlega spenntur. Ég er búinn að undirbúa mig fyrir það að vera mögulega í stærra hlutverki í þessum leik og ég er tilbúinn í það," sagði Ragnar fyrir æfingu íslenska liðsins í gær.

Hlynur Bæringsson er að glíma við ökklameiðsli og þarf því á meiri hjálp að halda en áður. Þar kemur Ragnar sterkur inn.

„Ég ætla ekki að segja það að ég sé kominn á sama "level" og Hlynur en ég verð allavega að "stíga upp" ef að hann er tæpur," sagði Ragnar.

Íslenska liðið gæti farið áfram þrátt fyrir tap en það er allt háð hagstæðum úrslitum úr öðrum riðlun. Sex af sjö liðum sem enda í 2. sæti sinna riðla tryggja sér farseðil á EM.

„Við ætlum ekki að hugsa um þessa útreikninga og látum bara þjálfarana um það. Við leikmennirnir ætlum að mæta brjálaðir í leikinn og mætum til að sigra þá," sagði Ragnar.

Það er uppselt á leikinn í fyrsta sinn í sögu heimaleikja karlalandsliðsins og Ragnar er ánægður með það.

„Það er gríðarlega spennandi að sjá hvort það verða jafnmikil læti hérna og í Bosníu þegar við vorum þar. Ég vona að það verði allt vitlaust" segir Ragnar og hann er klár.

„Ég er meira en tilbúinn að takast á við þessa stóru stráka hjá þeim," sagði Ragnar að lokum.


Tengdar fréttir

Vonar að adrenalínið gleypi sársaukann

Íslenska körfuboltalandsliðið spilar í fyrsta sinn fyrir fullri Laugardalshöll í kvöld og í boði er sæti á EM. "Við erum því miður ekki öryggir áfram en erum mjög nálægt þessu,“ segir Hlynur Bæringsson sem ætlar að spila þrátt fyrir ökklameiðsli. "Hann er

Hlynur: Raggi getur margt sem ég get ekki

Íslenska körfuboltalandsliðið spilar einn sinn mikilvægasta leik í kvöld þegar Bosníumenn koma í heimsókn í Laugardalshöll í lokaleik liðanna í undankeppni EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×