Handbolti

PSG úr leik þrátt fyrir fimmtán mörk frá Hansen

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hansen var frábær í dag.
Hansen var frábær í dag. vísir/getty
PSG er úr leik í Meistaradeild Evrópu í handbolta eftir tap í síðari leik liðanna gegn Veszprém í Ungverjalandi, 34-28.

Fyrri leikur liðanna endaði með jafntefil 24-24 og frönsku meistararnir lentu í miklum vandræðum í Ungverjalandi. Stemningin var gífurleg og voru heimamenn mun sterkari.

Þeir leiddu í hálfleik 16-12 og og náðu góðri forystu í síðari hálfleik. Lokatölur urðu svo sex marka sigur Vezprem, 34-28, sem er á leið undanúrslitin í svokallaðari Final four helgi í Köln í maí.

Mikkel Hansen lék á alls oddi í liði PSG, en hann skoraði fimmtán mörk í leiknum í dag. Róbert Gunnarsson gerði þrjú fyrir PSG, en Momir Ilic var markahæstur hjá Veszprém með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×