Handbolti

PSG örugglega áfram | Snorri og Ásgeir úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Róbert skoraði þrjú mörk í auðveldum sigri PSG.
Róbert skoraði þrjú mörk í auðveldum sigri PSG. vísir/getty
Leikið var í 16-liða úrslitum frönsku bikarkeppninnar í handbolta í dag.

Róbert Gunnarsson skoraði þrjú mörk þegar Paris Saint-Germain vann öruggan sigur, 45-27, á Mulhouse á heimavelli.

Frönsku landsliðsmennirnir Daniel Narcisse og Samuel Honrubia voru markahæstir í liði PSG með sex mörk hvor.

Snorri Steinn Guðjónsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson og félagar þeirra í Nimes eru úr leik eftir fjögurra marka tap, 26-30, fyrir Chartres á heimavelli.

Snorri Steinn var markahæstur í liði Nimes með sjö mörk en þrjú þeirra komu af vítalínunni. Ásgeir Örn skoraði fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×