Innlent

Pressa á birgja skipti mestu

Nokkuð var um réttarhlé meðan beðið var eftir vitnum í gær, og nýttu sækjandi, verjandi og aðstoðarmenn sér þessar stundir milli stríða til að rabba saman.
Nokkuð var um réttarhlé meðan beðið var eftir vitnum í gær, og nýttu sækjandi, verjandi og aðstoðarmenn sér þessar stundir milli stríða til að rabba saman. MYND/GVA

Sú pressa sem viðskipti Baugs við Nordica, félag Jóns Geralds Sullenberger í Bandaríkjunum, skapaði í samningum við innlenda birgja skipti meira máli en þau viðskipti sem í raun og veru áttu sér stað. Þetta sagði Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri Aðfanga, þegar hann bar vitni í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Eins og komið hefur fram í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra, voru verðtilboð sem Jón Gerald aflaði í vörur gjarnan notuð til þess að setja þrýsting á íslenska birgja til þess að fá betri verð.

Lárus tók í gær undir þetta, og benti á að viðskipti hafi verið milli Baugs og Nordica fyrir í kringum 60 milljónir króna á ári fram til ársins 1999, á sama tíma og velta Aðfanga, sem sér um innkaup fyrir Bónus, Hagkaup og 10-11, var talin í milljörðum. Viðskiptin við Nordica hafi verið brot af innflutningi Aðfanga, en pressan sem viðskiptin settu á innlenda birgja hafi verið meira virði.

Jón Ásgeir og Tryggvi, tveir sakborninga í málinu, hafa haldið því fram að mánaðarlegar greiðslur frá Baugi til Nordica hafi verið styrkur til Jóns Geralds. Þannig hafi honum verið greitt fyrir að afla tilboða, fara á vörusýningar og fleira, sem ekki hafi alltaf leitt til sölu til á Íslandi.

Jón Ásgeir og Tryggvi eru hins vegar ákærðir fyrir að draga fé úr Baugi til Gaums, fjölskyldufyrirtækis Jóns Ásgeirs, til að fjármagna hlut Gaums í skemmtibátnum Thee Viking.

Lárus var í gær spurður hvort þessi viðskipti við Nordica ættu sér fordæmi í öðrum viðskiptum Baugs, og nefndi hann danskt fyrirtæki, Simon‘s Agentur, sem hafi þjónað sama tilgangi. Hann hafi þó aldrei verið spurður út í þau viðskipti við rannsókn málsins.

Spurður hvort samið hafi verið um mánaðarlegar greiðslur til forsvarsmanns þess fyrirtækis staðfesti Lárus að hann hafi sjálfur samið um þær greiðslur. Hann sagðist hins vegar ekkert hafa vitað af mánaðarlegum greiðslum frá Baugi til Nordica, sem ákært er vegna.


Tengdar fréttir

Kauprétti ekki leynt

Engin leynd var um kauprétt þriggja æðstu stjórnenda Baugs, sem samið var um við stofnun félagsins árið 1998, sagði Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður félagsins, þegar hann bar vitni í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag.

Baugsmálið á Mánudaginn

Segja má að færeyskir dagar verði í dómsalnum á mánudag, en þá munu samkvæmt dagskrá eingöngu færeysk vitni koma fyrir dóminn. Meðal vitnanna verða feðgarnir Niels og Hans Mortensen, sem reka SMS verslunarkeðjuna í Færeyjum sem er að hálfu leyti í eigu Baugs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×