Golf

Paul McGinley íhugar að stía Mcilroy og McDowell i sundur

McIlroy og McDowell á Medinah vellinum fyrir tveimur árum.
McIlroy og McDowell á Medinah vellinum fyrir tveimur árum. Vísir/Getty
Paul McGinley, Ryder-fyrirliði Evrópuliðsins, íhugar að para ekki Rory McIlroy og Graeme McDowell saman í Ryder-bikarnum sem hefst á föstudaginn en þeir hafa verið nánast óaðskiljanlegir í síðustu tveimur Ryderum.

Þrátt fyrir að hafa spilað sex leiki saman hafa þeir aðeins unnið tvö og hálft stig, sem er tölfræði sem McGinley er ekki sáttur með. Norður-Írarnir eru einnig ekki taldir vera jafn miklir félagar þessa dagana og þeir voru fyrir tveimur árum en ástæðan gæti verið lögsókn McIlroy á hendur umboðsskrifstofunni Horizon Sports, þar sem nafn McDowell kemur oft fyrir.

Ég hafði alltaf hugsað mér að para þá tvo saman en ég hef verið að pæla meira og meira í því að undanförnu að þeir gætu blómstrað með einhverjum öðrum líka, “ sagði Paul McGinley við fréttamenn í gær þegar hann var spurður út í McIlroy og McDowell. „Ég held að sambandið á milli þeirra sé í góðu lagi en það kemur í ljós hvernig þeim verður stillt upp þegar að mótið hefst. Eitt er víst að ég er feginn að hafa þá báða í liðinu þótt að tölfræði þeirra saman sé kannski ekki sú besta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×