Vara við rangfærslum og hræðsluáróðri Evrópusamtökin mótmæla í yfirlýsingu auglýsingum Samtaka ungra bænda, sem birtust í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í gær. Samtökin segja umræðu um málefni Evrópusambandsins verða að vera málefnalega, ekki byggða á rangfærslum og hræðsluáróðri. Innlent 29. maí 2010 06:00
Leiðrétting: Framsóknarflokkurinn á heiðurinn að frístundakortunum Í frétt á Stöð 2 í kvöld, þar sem fjallað var um kosningaloforð flokkanna fyrir síðustu kosningar og orð og efndir í þeim efnum, varð fréttakonu á að eigna Sjálfstæðisflokknum heiðurinn að frístundakortum fyrir börn í borginni. Innlent 28. maí 2010 21:21
Frambjóðendur tókust á í beinni Fulltrúar þeirra framboða í Reykjavík sem hafa verið að mælast með mann inni í könnunum fyrir komandi kosningar á morgun hittust í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Þar var farið yfir helstu áherslur flokkanna og spáð í spilin um mögulegt samstarf að kosningum loknum. Innlent 28. maí 2010 19:32
Segir skemmdarvarga tengda Samfylkingunni Mikil harka er hlaupin í kosningabaráttuna í Kópavogi. Kosningastjóri framsóknarflokksins sakar aðila tengda frambjóðanda Samfylkingarinnar um að hafa skemmt fjölda kosningaskilta á vegum flokksins í bænum. Frambjóðandinn segir ásakanirnar fásinnu. Innlent 28. maí 2010 18:44
Veðja á Jón Gnarr Jón Gnarr verður næsti borgarstjóri í Reykjavík ef marka má spár þeirra sem veðja á vefsíðunni Betsson. Næstlíklegust þykja þau Hanna Birna Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson. Þá eru einhverjir sem spá því að næsti borgarstjóri komi ekki úr hópi þeirra sem bjóða sig fram til borgarstjórnar en langólíklegast þykir að Sóley Tómasdóttir verði borgarstjóri. Innlent 28. maí 2010 18:28
Besti flokkurinn dalar - Sjálfstæðismenn í sókn Besti flokkurinn fær sex borgarfulltrúa ef kosningar á morgun verða í samræmi við nýja könnun sem Capacent gerði fyrir RÚV og sagt var frá í sexfréttum. Innlent 28. maí 2010 18:17
Reykjavíkurframboðið kærir Stöð 2 til útvarpsréttarnefndar Reykjavíkurframboðið hefur lagt fram kæru á Stöð 2 til útvarpsréttarnefndar vegna brots á 9. grein útvarpslaga. Krafist er tafarlausrar úrlausnar útvarpsréttarnefndar með tilliti til sveitarstjórnarkosninganna á laugardaginn. Innlent 28. maí 2010 13:42
Sjöundi meirihlutinn sem fellur Bæjarstjórnarmeirihlutinn í Kópavogi er sjöundi meirihlutinn sem fellur, samkvæmt skoðanakönnunum Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, sem mynda meirihlutann, tapa fylgi frá síðustu könnun, sem gerð var 8. apríl. Innlent 28. maí 2010 08:30
Vonast eftir betri niðurstöðu í kosningunum „Þetta eru nú ákveðin vonbrigði. Ég stóð í þeirri trú að við myndum bæta við okkur jafnt og þétt. Ég hef stefnt að því allan tímann að ná hreinum meirihluta til að við getum staðið fyrir einhverjum alvöru breytingum í borginni,“ segir Jón Gnarr, efsti maður á lista Besta flokksins. Innlent 28. maí 2010 06:45
D-listinn vinnur mann af Besta flokknum í borginni Stuðningur við Sjálfstæðis-flokkinn í Reykjavík hefur aukist síðustu vikuna, á meðan dregur úr fylgi Samfylkingarinnar og Besta flokksins, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi. Innlent 28. maí 2010 06:30
Steinunn Valdís segir af sér þingmennsku Steinunn Valdís Óskarsdóttir hefur ákveðið að segja af sér sem þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík. Innlent 27. maí 2010 17:34
Hreyfingin gagnrýnir Stöð 2 harðlega Þingmenn Hreyfingarinnar mótmæla harðlega vinnubrögðum Stöðvar 2 nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en stöðin hyggst gera upp á milli framboða í Reykjavík með því að bjóða aðeins sumum framboðum að koma fram í umræðuþætti annað kvöld. Þetta kom fram í tilkynningu frá Hreyfingunni sem hún sendi frá sér fyrr í dag. Innlent 27. maí 2010 16:22
Oddviti L-listans: Bíðum róleg „Við erum róleg og vitum að að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómarinn flautar. Við bíðum því róleg eftir því hvað kemur upp úr kjörkössunum," segir Geir Kristinn Aðalsteinsson sem skipar fyrsta sæti á framboðslista L-listans, lista fólksins, á Akureyri. Innlent 27. maí 2010 15:36
Flestir vilja Hönnu Birnu í borgarstjórastólinn Flestir Reykvíkingar, eða rösklega 41 prósent, vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði áfram borgarstjóri, samkvæmt skoðanakönnun Morgunblaðsins. Heldur fleiri konur styðja Hönnu Birnu en karlar. Innlent 27. maí 2010 07:04
Steinunn Valdís segi af sér Innan borgarstjórnarhóps Samfylkingar er mikið rætt um að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður flokksins, eigi að segja af sér þingmennsku, að sögn Hjálmars Sveinssonar, sem er í fjórða sæti listans. Innlent 27. maí 2010 05:30
Segir keppinauta njóta forskots Fulltrúar C-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi gagnrýna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Sólheimum í Grímsnesi í dag. Innlent 27. maí 2010 03:00
Jón Gnarr gerir kröfu til borgarstjórastólsins Jón Gnarr gerir kröfu til þess að verða borgarstjóri Reykjavíkur, nái Besti flokkurinn mestu fylgi í komandi kosningum á laugardag. Þetta kom fram í umræðuþætti á Skjá einum í kvöld þar sem oddvitar framboðanna í Reykjavík tókust á. Innlent 26. maí 2010 22:36
Þrír dagar til sveitastjórnakosninga - myndskeið Nú eru aðeins þrír dagar til sveitastjórnakosninga. Fréttamenn og myndatökumenn á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis hafa fylgst grannt með gangi mála. Nú þegar hafa þeir kynnt sér helstu strauma og stefnur í fimm af stærstu sveitarfélögum landsins og munu halda áfram að kynna sér málin allt fram á elleftu stundu. Innlent 26. maí 2010 11:45
Besti flokkurinn með sjö fulltrúa Besti flokkurinn fær 43 prósenta fylgi og sjö fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun Morgunblaðsins. Vantar því aðeins einn fulltrúa á hreinan meirihluta. Innlent 26. maí 2010 06:48
Hefur ekki gefið sér tíma enn „Ég geri það á morgun eða hinn,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi í gær, spurður hvenær hann hyggst gefa upp nöfn þeirra fyrirtækja sem gáfu honum styrki fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Innlent 25. maí 2010 05:30
Skýrsla um Álftanes eftir kosningar Ríkisendurskoðun segir að niðurstöður athugunar á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftanes muni ekki verða kynntar fyrr en um miðjan júní. Innlent 25. maí 2010 04:30
Um 4500 erlendir ríkisborgarar með kosningarétt Rétt rösklega 4500 erlendir ríkisborgarar eiga kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningarnar þann 29. maí næstkomandi og hefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytið nú sent þeim öllum kynningarbækling um kosningarnar. Í bæklingnum er að finna leiðbeiningar á ellefu tungumálum auk íslensku um kosningarrétt, kjörskrá, framkvæmd atkvæðagreiðslu og fleira. Innlent 20. maí 2010 16:27
Segir valið standa á milli Í-listans og núverandi meirihluta Sigurður Pétursson, bæjarfulltrúi og oddviti Í-listans á Ísafirði, segir að ný skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sýni að valið í kosningunum í lok mánaðarins standi á milli núverandi meirihluta og Í-listans. Innlent 20. maí 2010 10:38
Meirihlutinn kolfallinn á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn samkvæmt könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðisflokkurinn geldur afhroð og missir tvo af fjórum bæjarfulltrúum. Innlent 18. maí 2010 18:25
Skilyrði fyrir samstarfi að viðkomandi hafi horft á The Wire „Ég bjóst við meiru. Það var sjokkerandi að heyra að það væru ekki fleiri að kjósa Besta flokkinn,“ segir Jón Gnarr sem er ótvíræður sigurvegari í skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Stöð 2 greindi frá en þar kemur í ljós að Besti flokkurinn nær 6 fulltrúum inn í borgarstjórn fari kosningar eins og könnunin gefur til kynna. Innlent 17. maí 2010 20:32
„Hver borgaði Framsókn?“ „Sá flokkur sem sópar undir teppið er að víkja sér undan ábyrgð. Það er Framsóknarflokkurinn að gera. Hann hefur ekki gert hreint fyrir sínum dyrum,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í grein í Morgunblaðinu í dag. Innlent 12. maí 2010 10:01
Óttast að hann kjósi sé nafnið á kjörskrá „Af því að það vill enginn axla ábyrgð ætla ég að gera það því ég er náttúrlega ábyrgur sem kjósandi,“ segir Kristján Sig. Kristjánsson rafvirkjameistari sem sendi borgarstjóra bréf með ósk um að verða vinsamlegast tekinn af kjörskrá fyrir komandi kosningar. Innlent 12. maí 2010 04:00
Sjálfstæðisflokkur heldur meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn tapar einum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum en heldur hreinum meirihluta bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi. Innlent 11. maí 2010 06:30
Engar kosningar á Skagaströnd Ljós er að ekki þarf að kjósa til sveitastjórnar á Skagaströnd þar sem einungis einn listi býður þar fram samkvæmt fréttavefnum Feykir.is. Innlent 10. maí 2010 15:42
Kosningar 2010: VG með félagslegt réttlæti að leiðarljósi Vinstri grænir í Reykjavík, undir forystu Sóleyjar Tómasdóttur, kynntu stefnumál sín síðdegis í dag. Sóley sagði kosningarnar snúast um hugmyndafræði en Vinstri grænir hefðu félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Flokkurinn boðaði fleiri úrræði í húsnæðismálum með leigu- og kaupleigumarkaði, fjölbreyttari atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónustu og sorpflokkun við heimili fólks. Innlent 9. maí 2010 17:58