Erlent

Oscar de la Renta er allur

Vísir/AP
Hinn heimsfrægi fatahönnuður, Oscar de la Renta er látinn, áttatíu og tveggja ára að aldri. De la Renta hannaði kjóla á margar heimsfrægar konur á borð við Jackie Kennedy og Hillary Clinton.

Eitt síðasta verk hans var að hanna brúðarkjólinn á Amal Clooney, sem gekk að eiga hjartaknúsarann George Clooney í Feneyjum á dögunum. Ekki hefur verið gefið út hvað dró hann til dauða en hann mun þó hafa barist við krabbamein síðustu misserin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×