Viðskipti innlent

Orkuveitan fær 11,3 milljarða frá borginni

Reykjavíkurborg mun lána Orkuveitunni 11,3 milljarða króna til þess að rétta af fjárhag fyrirtækisins. Þetta var samþykkt á borgarráðsfundi í dag en borgarstjóri lagði tillöguna fram. Bróðurpartur lánsins verður greiddur út þann 1. apríl næstkomandi eða 7,4 milljarðar en eftirstöðvarnar á fyrri hluta árs 2013.

Þá herma heimildir Vísis að sala allra eigna Orkuveitunnar utan kjarnastarfsemi verði undibúin enda sé lánið frá borginni háð því skilyrði. Einnig kemur til greina að borgin kaupi hús Orkuveitunnar og leigi henni til baka.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×