Golf

Opna breska hafið - Spieth fer vel af stað

David Lingmerth fór á kostum á fyrri níu í morgun.
David Lingmerth fór á kostum á fyrri níu í morgun. Getty
Opna breska meistaramótið hófst í morgun en ástralski kylfingurinn Rod Pampling tók fyrsta höggið.

Aðstæður á St. Andrews eru með besta móti, völlurinn óvenjulega grænn, lítill vindur og þurrt.

Það gæti þó rignt seinna í dag og á morgun og því gætu þeir kylfingar sem eru með rástíma snemma fengið forskot á þá sem fara út seinna í dag.

Einn af þeim sem nýtti góðu aðstæðurnar vel í morgun var Svíinn David Lingmerth en hann fór á kostum á fyrri níu holunum, fékk sjö fugla og tvö pör og er með þriggja högga forystu þegar að þetta er skrifað.

Jordan Spieth hóf leik nú rétt í þessu en hann freistar þess að sigra á sínu þriðja risamóti á árinu.

Hann hefur fengið tvo fugla á fyrstu tveimur holunum og fer mjög vel af stað.

Tiger Woods hóf svo leik klukkan níu og fékk skolla á fyrstu holuna en bein útsending er hafin á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×