Handbolti

Óli Stef verður með Val í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur Stefánsson verður í leikmannahópi Vals gegn Aftureldingu í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í kvöld. Þetta staðfestir Stefán Karlsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, á Twitter.

Ólafur verður Geir Guðmundssyni til halds og trausts en Ómar Ingi Magnússon, hin örvhenta skyttan í leikmannahópi Vals, er meiddur og verður ekki meira með í úrslitakeppninni.

Ólafur lék með Val í 26-23 sigri á Akureyri í Olís-deildinni 31. október á síðasta ári en það var fyrsti leikur hans í Valstreyjunni frá vorinu 1996. Ólafur skoraði sex mörk í leiknum.

Leikur Vals og Aftureldingar hefst klukkan 18:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×