Golf

Ólafía verður með frænda sinn á pokanum í Ástralíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía slær af teig á Pure Silk-mótinu á Bahamaeyjum.
Ólafía slær af teig á Pure Silk-mótinu á Bahamaeyjum. MYND/GSIMYNDIR.NET/SETH
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur í kvöld leik á LPGA-mótinu ISPS Handa sem fer fram í Adelaide í Ástralíu. Ólafía hélt utan um helgina eftir að hafa dvalið á Íslandi síðustu vikurnar.

„Ferðalagið var þægilegt og svefninn er allur að koma til,“ sagði Ólafía í samtali við Vísi. „Ég vakna samt stundum um miðja nótt.“

Hún segir að æfingar hafi gengið vel í Ástralíu og að aðstæður séu frábærar.

„Völlurinn er skemmtilegur. Flatirnar eru ef til vill helst varasamar enda ekki mjög stórarar. Þær eru líka hægar miðað við Bahamas, en samt góðar.“

Ólafía náði frábærum árangri á hennar fyrsta LPGA-móti, er hún komst í gegnum niðurskurðinn á Pure Silk-mótinu á Bahamaeyjum og hafnaði í 69. sæti.

Sjá einnig: Búumst við enn betri árangri hjá Ólafíu í Ástralíu

„Markmiðið mitt er að bæta mig og vera í andlegu jafnvægi. Þá kemur allt hitt að sjálfu sér,“ sagði hún en eftir frábæra byrjun á Bahamaeyjum gaf Ólafía eftir á þriðja keppnisdegi.

Hún segist hafa verið heppin með veður í Ástralíu og að hitinn sé ekki óbærilegur eins og hann vill oft verða á þessum slóðum um þetta leyti.

„Það er búið að vera mjög heitt í Ástralíu en ekki of heitt síðustu dagana. Það getur þó orðið vindasamt þannig að það verður gott að byrja snemma um morguninn fyrsta daginn,“ segir Ólafía en hún á rástíma klukkan 07.11 að staðartíma - klukkan 20.41 að íslenskum tíma í kvöld.

Sjá einnig: Ólafía Þórunn mætir besta kylfingi heims í næsta móti

Ólafía er ekki enn komin með atvinnukylfubera og verður með Guðlaug frænda sinn á pokanum þetta mótið. Hann býr í Brisbane sem er í þriggja tíma fjarlægð frá Adelaide með flugi.

„Hann er legend,“ segir hún í léttum dúr. „Ég er ekki enn búin að finna mér atvinnukylfubera þannig að ég er svolítið að skipta eftir hentugleika.“

„Ég er samt búin að fá nokkrar góðar ráðleggingar frá nokkrum vinkonum hérna á túrnum þannig að kannski prófa ég atvinnumann í Phoenix, ef ég finn einhvern sem virðist henta mér,“ sagði Ólafía enn fremur.

Mótið sem hún nefnir í Phoniex fer fram um miðjan marsmánuð.


Tengdar fréttir

Geggjað að vera undir pari þrjá daga af fjórum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þreytti frumraun sína á LPGA-mótaröðinni í golfi á Bahamaeyjum. Ólafía lék samtals á fimm höggum undir pari. Hún átti erfitt uppdráttar á laugardaginn en náði sér á strik í gær.

Búumst við enn betri árangri hjá Ólafíu í Ástralíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur keppni í kvöld á sínu öðru móti á LPGA-mótaröðinni. Nú er keppt í Adelaide í Ástralíu en þjálfari hennar segir að hún hafi nýtt tímann eftir síðasta mót til að safna kröftum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×