Golf

Ólafía Þórunn með fimm fugla á degi tvö | Örugg í gegnum niðurskurðinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Daníel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er að spila mjög vel á móti í Sviss en það er hluti af LET Access mótaröðinni. Ólafía Þórunn er í 11. sæti eftir tvo daga en hún náði niðurskurðinum auðveldlega sem var eftir 36 holur.

Ólafía Þórunn lék á parinu í gær en hún var þremur höggum undir pari í dag. Ólafía náði meðal annars fimm fuglum á holunum átján. Hún lék bæði fyrri níu holurnar og seinni níu holurnar á færri höggum en daginn áður.

Alls eru 126 keppendur á þessu móti frá 28 þjóðum. Mótið fer fram á Golf Club Gams Werdenberg í Gams í Sviss. Heildarverðlaunaféð er 4,3 milljónir kr.

Þetta er annað mótið á þessu ári hjá Ólafíu en hún undirbýr sig af krafti fyrir fyrsta mótið á sjálfri LET Evrópumótaröðinni í byrjun maí.

Ólafía lék á sínu fyrsta móti á Terre Blanche mótinu í Frakklandi í lok mars og þar náði hún fínum árangri og lék á einu höggi undir pari samtals og endaði á meðal fimmtán efstu.

Ólafía er með keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki en hún fær samt sem áður ekki mörg tækifæri á þeirri mótaröð á sínu fyrsta keppnistímabili.

Hún nýtir því hvert tækifæri til þess að keppa á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Access mótaröðinni, en þar eru tveir íslenskir kylfingar með keppnisrétt. Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×