Golf

Ólafía Þórunn: Upphafshöggin voru lengri í dag en fyrir nokkrum vikum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gerði góða hluti á fyrsta hringnum á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum í dag.



Ólafía lék hringinn á 71 höggi, eða tveimur höggum undir pari. Hún er sem stendur í 21. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum.

„Mér líður mjög vel og þar var virkilega gaman að spila í dag,“ sagði Ólafía í samtali við golf.is eftir að hún kláraði hringinn í dag.

Ólafía var í ráshópi með Cheyenne Woods og Natalie Gulbis og sló fyrsta högg. Hún segir að hjartað hafi slegið ört fyrir upphafshöggið.

„Gaurinn sem var að ræsa okkur út sagði að það væru svona tvær mínútur í það að ég ætti að slá. Hann hafði varla lokið við að segja þetta þegar hann kallaði mig upp, þetta voru svona 30 sekúndur, ég var því ekki alveg tilbúin,“ sagði Ólafía.

„Það fór aðeins til vinstri en var allt í lagi og ég fékk par. Ég var að leika svipað golf í dag og á úrtökumótinu fyrir LPGA. Hitti mikið af brautum í upphafshöggunum, margar flatir í tilætluðum höggafjölda og púttaði vel. Upphafshöggin voru mjög góð og ég fann einhvern takt á hringnum sem ég hef ekki verið með lengi. Upphafshöggin voru mun lengri í dag en fyrir nokkrum vikum, og það var ánægjulegt.“

Ólafía og Cheyenne Woods, frænka Tigers, þekkjast vel en þær voru saman í Wake Forest háskólanum á sínum tíma.

„Tíminn flaug í dag, við Cheyenne vorum að rifja upp gamlar minningar úr skólanum, hvernig við vorum að stríða þjálfaranum okkar, og allskonar sögur sagðar. Natalie Gulbis var líka frábær, skemmtilegur kylfingur, og það var virkilega gaman að fá að leika með henni,“ sagði Ólafía.

Hún ætlar að fara eftir sömu leikáætlun á morgun.

„Ég fer í þetta mót eins og úrtökumótið. Er ekki með miklar væntingar, reyni bara að fá eins mörg pör og hægt er, það er geggjað ef fuglarnir koma og ég mun fá einhverja skolla. Þetta er planið mitt og ekkert flókið við það,“ sagði Ólafía sem hefur leik klukkan 17:37 á morgun.


Tengdar fréttir

Vil mjólka það að ég sé frá Íslandi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir brýtur í dag blað í sögu íslensks golfs er hún verður fyrsti íslenski kven­kylfingurinn sem keppir á bandarísku atvinnumótaröðinni í golfi. Mótið fer fram á Bahama-eyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×