Innlent

Ökumenn til fyrirmyndar á Háaleitisbrautinni

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Háaleitisbraut í Reykjavík í gær.

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háaleitisbraut í vesturátt, við innkeyrslu að húsum númer 15-17.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 271 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×