Viðskipti innlent

Ódýrara að taka rútuna á völlinn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ef farið er í lengri ferðir til útlanda verður ódýrara að taka rútuna á Keflavíkurflugvöll en að leggja í langtímastæði.
Ef farið er í lengri ferðir til útlanda verður ódýrara að taka rútuna á Keflavíkurflugvöll en að leggja í langtímastæði. vísir/stefán
Farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll munu geta sparað sér umtalsverðar fjárhæðir með því að taka rútu á flugvöllinn í stað þess að leggja bílnum í langtímastæði á flugvellinum en bílastæðagjaldið mun hækka úr 950 krónum fyrir sólarhringinn í 1250 krónur þann 1. apríl næstkomandi.

Fjallað er um málið á vef Túrista en í grafi sem þeir birta, og sjá má hér að neðan, kemur fram að ef fjölskylda sem telur tvo fullorðna og tvö börn fer til útlanda í tvær vikur þá kostar það 15.400 krónur að leggja bílnum í langtímastæði á Keflavíkurflugvelli.

Hins vegar kostar það 7.600 að taka Airport Express-rútuna á völlinn og 8.000 krónur að fara með Flybus-rútunni, en auk þeirra býður Strætó upp á sætaferðir út á Keflavíkurflugvöll. Áætlun Strætó hentar þó ekki sem þurfa að taka morgunflug til útlanda.

Greint var frá því í gær að gjaldskrá bílastæða á Keflavíkurflugvelli myndi hækka en Neytendasamtökin hafa gagnrýnt hækkunina. Þau segja hana nema allt að 117 prósentum þar sem hún verður mest en í yfirlýsingu samtakanna í gær sagði meðal annars:

„Isavia réttlætir þessa hækkun með fjölgun farþega. Væntanlega er þar átt við fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands. Neytendasamtökin minna á að þeir sem nota þessi bílastæði eru ekki erlendir ferðamenn heldur Íslendingar. Isavia hefur í dag einokun á bílastæðum við Leifsstöð og það er í krafti þeirrar einokunar sem Isavia treystir sér til að hækka verðið jafn mikið og nú er ráðgert.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×