Erlent

Óboðinn gestur í Hvíta húsinu: Var með 800 byssukúlur í bíl sínum

Vísir/AP
Maður sem braust inn á lóð Hvíta hússins í Washington á föstudagskvöld var með rúmlega áttahundruð byssukúlur í bíl sínum sem hann hafði lagt skammt frá heimili forseta Bandaríkjanna.

Þá fannst í bílnum sveðja og tvær axir að því er lögregluyfirvöld í borginni segja. Maðurinn, hinn 42 ára gamli Oscar Gonzales, var vopnaður hnífi þegar hann var stöðvaður af öryggisvörðum forsetans.

Fyrr á árinu var hann stöðvaður af lögreglu í borginni og þá fundust tveir rifflar í bíl hans auk þess sem hann var með kort þar sem búið var að draga hring utanum Hvíta húsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×