Viðskipti innlent

Nýskráningum fyrirtækja fjölgar um 11 prósent

Atli Ísleifsson skrifar
Mest er fjölgun nýskráninga í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 38 prósent á síðustu 12 mánuðum.
Mest er fjölgun nýskráninga í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 38 prósent á síðustu 12 mánuðum. Vísir/Pjetur
Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu síðastliðna tólf mánuði, frá ágúst 2014 til júlí 2015, fjölgaði um 11 prósent samanborið við 12 mánuði þar á undan.

Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar. Alls voru 2.219 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 38 prósent á síðustu 12 mánuðum.

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði, frá ágúst 2014 til júlí 2015, hafa dregist saman um 15 prósent samanborið við tólf mánuði þar á undan. „Alls voru 719 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í framleiðslu hefur fækkað mest, eða um 34% á síðustu 12 mánuðum.“

Nánar má lesa um þróunina í frétt Hagstofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×