Golf

Nýkrýndur stigameistari segir mótaröðina ekki hafa neitt vægi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kristján Þór í miðjunni.
Kristján Þór í miðjunni. Vísir/gsimyndir.net
Kristján Þór Einarsson, GKJ, tryggði sér stigameistaratitilinn með sigri á sjötta móti Eimskipsmótaraðarinnar í dag. Mótið fór fram á Akranesi.

Kristján Þór vann með fimm högga mun á Garðavelli í dag og tryggði sér þannig stigameistaratitilinn. Hann skaut föstum skotum að golfsambandinu þar sem hann segir að Eimskipsmótaröðin nái ekki að blómstra á meðan stigahæstu kylfingarnir séu ekki valdir í landsliðið.

„Á undanförnum árum hefur verið talað um að auka veg og virðingu Eimskipsmótaraðarinnar og gera hana stærri. Það er erfitt á meðan þeir sem eru að spila á henni fá ekkert út úr mótaröðinni. Það er leiðinlegt að segja það en Eimskipsmótaröðin hefur ekki mikið vægi," sagði Kristján Þór í samtali við kylfingur.is.

„Það er gaman að vera stigameistari og ég fór langt framúr mínum markmiðum. Ég stefndi á að vera í topp fimm á sem flestum mótum sumarsins. Það hefur gengið eftir hingað til. Ég skelli mér með strákunum í lokamótið á Akureyri þrátt fyrir að stigameistaratitillinn sé tryggður."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×