Innlent

Ný tilmæli um heimsóknir á fæðingar- og sængurlegudeild spítala

Atli Ísleifsson skrifar
Tilmælin byggja á stefnu um heimsóknir og viðveru við fæðingar sem mótuð var þegar fæðingarþjónustunni á spítalanum var breytt árið 2014.
Tilmælin byggja á stefnu um heimsóknir og viðveru við fæðingar sem mótuð var þegar fæðingarþjónustunni á spítalanum var breytt árið 2014. Vísir/Valli
Ný tilmæli um heimsóknir og viðveru á meðgöngu- og sængurlegudeild og fæðingarvakt Landspítala taka gildi 1. maí 2015.

Í tilkynningu frá Landspítala segir að tilmælin byggi á stefnu um heimsóknir og viðveru við fæðingar sem mótuð var þegar fæðingarþjónustunni á spítalanum var breytt árið 2014. Í þeirri stefnumótun hafi fagleg sjónarmið í hvívetna verið höfð að leiðarljósi.

„Aðstandendur hafa eðlilega ríka þörf fyrir að koma í heimsókn og foreldrar að sýna nýja barnið sitt. Með breyttum heimsóknartilmælum vakir fyrir ljósmæðrum og læknum kvennadeilda að vernda viðkvæmt ferli tengslamyndunar og gæta sem best að heilsu móður og barns fyrstu klukkustundirnar eftir fæðingu. Hagsmunir fjölskyldunnar eru því hafðir í fyrirrúmi.

Heimsóknir á fæðingarvakt 23B

Ljósmæður og læknar fæðingarvaktar mælast til þess að eingöngu einn einstaklingur sé viðstaddur fæðingu móðurinni til stuðnings til að trufla ekki það viðkvæma ferli sem fæðingin er. Heimsóknir á fæðingarvakt til fæðandi kvenna og fyrstu tímana eftir fæðingu eru ekki æskilegar. Fæðingin og tíminn fyrst eftir fæðingu er mikilvægur fyrir tengslamyndun foreldra og nýbura. Grunnurinn að brjóstagjöf er lagður á fyrstu tímunum eftir fæðingu og mikilvægt að móðir og barn fái frið og tíma til að leggja þann mikilvæga grunn. Konur dvelja á fæðingarvaktinni meðan á fæðingu stendur og í um það bil tvær klukkustundir eftir fæðingu. Eftir það flytjast þær á meðgöngu- og sængurlegudeild.

Heimsóknir á meðgöngu- og sængurlegudeild 22A

Heimsóknir á meðgöngu- og sængurlegudeild eru eingöngu fyrir nánustu aðstandendur milli kl. 16:00 og 19:30. Mikilvægt er að sýna tillitssemi, skipuleggja heimsóknir í samráði við foreldra og fresta heimsóknum ef fólk er með kvef eða flensu. Heimsóknir barna yngri en 12 ára hafa ekki verið leyfðar í vetur vegna RS víruss og verður það bann í gildi meðan ný tilfelli koma upp.

Mikilvægt er að heimsóknargestir kanni hjá foreldrum hvar fjölskyldan er því meðgöngu- og sængurlegudeildin er bæði á 2. og 3. hæð í kvennadeildarhúsi Landspítala. Konur sem eiga börn á vökudeild dvelja yfirleitt á 3. hæð og þá er gengið inn um Barnaspítalann. Aðrar sængurkonur og konur sem eru inniliggjandi á meðgöngu dvelja á 2. hæð og þá er gengið inn um inngang kvennadeildarhússins,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×