Innlent

Skipar fram­kvæmda­nefnd um mál­efni Grinda­víkur

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Verkefni framkvæmdanefndarinnar snúa einkum að samfélagsþjónustu og framkvæmdum og viðgerðum á mikilvægum innviðum í Grindavík
Verkefni framkvæmdanefndarinnar snúa einkum að samfélagsþjónustu og framkvæmdum og viðgerðum á mikilvægum innviðum í Grindavík Vísir/Vilhelm

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um að stofnuð verði sérstök framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð og samfélag. Svandís segir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga vera umfangsmesta verkefni sem stjórnvöld hafi tekist á við vegna náttúruhamfara. 

Í frumvarpinu er lagt til að nefndin fari með stjórn, skipulagningu og samhæfingu aðgerða, tryggi skilvirka samvinnu við sveitarstjórn og opinbera aðila og hafi heildaryfirsýn yfir málefnum Grindavíkurbæjar.

Svandís kynnti áformin á blaðamannafundi að loknum ríkisstjórnarfundi. Þar kom fram að frumvarpið sé unnið í samstarfi við bæjarstjórn Grindavíkur sem óskaði eftir samstarfi um tilhögun og stjórnarfyrirkomulag verkefna við óvenjulegar aðstæður vegna jarðhræringa í Grindavík. Lagt er til að framkvæmdanefndin starfi tímabundið og að lögin falli úr gildi við næstu sveitarstjórnarkosningar árið 2026. 

Bæjarstjórn í baráttuhug

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar ávarpaði fundinn. Hún sagði að nú væru 175 dagar frá því að rýma þurfti bæinn.Margir ætluðu að snúa heim eftir þá helgi eða nokkra daga. Hún sagði bæjarstjórnina í baráttuhug og markmiðið væri að að tryggja forgangsverkefni og fjármögnum verkefna til framtíðar.

Ásrún Helga sagði bæjarstjórn Grindavíkur halda í bjartsýni og von um að bærinn yrði endurbyggður. Vísir/Ívar

„Grindavíkurbær ræður ekki einn við þetta verkefni,“ sagði Ásrún. Frumvarpið fæli í sér mikilvæg markmið um farsæld íbúa sama hvar þeir búa.

Umfangsmesta verkefni stjórnvalda vegna náttúruhamfara

„Jarðhræringarnar hafa skapað fordæmalausar aðstæður. En eitt hefur þó verð á hrein allan tímann, að samfélagið á Íslandi hefur sameinast um að styðja við Grindavík og samfélag þeirra,“ sagði Svandís. 

Hún segir jarðhræringarnar eitt umfangsmesta verkefni stjórnvalda vegna náttúruhamfara á sögulegum tíma. Mikilvægt væri að skapa skýra og farsæla umgjörð um verkefnin framundan.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur verði fjölskipað og sjálfstætt stjórnvald sem hafi með höndum fjölþætt verkefni sem snúa að úrlausnarefnum sem tengjast jarðhræringunum við Grindavík. Með því að setja sérstök lög um starf framkvæmdanefndarinnar er hlutverk og umboð nefndarinnar skýrt.

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar mun áfram fara með stjórn sveitarfélagsins, starfsmannahald og bera ábyrgð á og hafa fullt fjárstjórnunarvald yfir lögbundnum og ólögbundnum verkefnum, sem framkvæmdanefnd eru ekki falin sérstaklega.

Framkvæmdanefndin verður skipuð þremur einstaklingum og tekur til starfa við gildistöku laganna. Innviðaráðherra skipar einn fulltrúa, sem jafnframt verður formaður, mennta- og barnamálaráðherra einn og dómsmálaráðherra einn.

Helstu verkefni framkvæmdanefndar

Verkefni framkvæmdanefndarinnar snúa einkum að samfélagsþjónustu og framkvæmdum og viðgerðum á mikilvægum innviðum í Grindavík. Mörgum þessara verkefna hefur til þessa verið sinnt af Almannavörnum og öðrum stjórnvöldum. Helstu verkefni nefndarinnar eru:

  • Starfrækja þjónustuteymi á sviði velferðar- og skólaþjónustu fyrir íbúa Grindavíkurbæjar, m.a. skóla- og frístundastarf, félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu, þjónustu við eldra fólk, fatlað fólk og aðra viðkvæma hópa og stuðning á sviði húsnæðis- og vinnumarkaðsmála.
  • Hafa umsjón með nauðsynlegum viðgerðum á samfélagslegum innviðum og könnun á jarðvegi. Einnig með nauðsynlegum viðgerðum til að tryggja virkni og afhendingaröryggi mikilvægra innviða o.fl.
  • Umsjón með vernd verðmæta og framkvæmd aðgangsstýringar í Grindavíkurbæ í samvinnu við lögreglu.
  • Þá verður innviðaráðherra heimilt að fela nefndinni að fara með samhæfingu verkefna sem kunna að vera á höndum annarra stjórnvalda með samþykki þeirra fagráðuneyta sem málasviðið heyrir undir. Loks verður sveitarstjórn Grindavíkurbæjar einnig heimilt að fela nefndinni tiltekin lögbundin eða ólögbundin verkefni.
Svandís lauk fundinum með orðunum: „Áfram Grindavík.“Vísir/Ívar

Tengdar fréttir

Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir

Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Á Suðurlandi er greiða Grindvíkingar að meðallagi 32 prósent hærri leigu en aðrir.

Skilur mikla örvæntingu og reiði Grindvíkinga

Reiði og örvænting fer vaxandi meðal Grindvíkinga vegna óvissuástands í húsnæðismálum og skorts á upplýsingagjöf vegna uppkaupa. Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist hafa verulegar áhyggjur af andlegri líðan bæjarbúa.

Grindvíkingar í hjólhýsum og pínulitlum íbúðum

Forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir 130 fjölskyldur úr Grindavík enn búa við óviðunandi húsnæðiskost. Dæmi séu um fólk sem búi í hjólhýsum og fjölskyldur í um tuttugu fermetra íbúðum. Farið er fram á frekari stuðning ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×