Erlent

Norwegian Air breytir stefnu sinni vegna Ara: „Við unnum“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Norwegian Air hefur boðist afsökunar vegna málsins og ætlar að endurskoða stefnu sína.
Norwegian Air hefur boðist afsökunar vegna málsins og ætlar að endurskoða stefnu sína. MYND/EGGERT JÓHANNSSON/EPA
Ari Vilhjálmsson, íslenskur fiðluleikari sem lenti í miklum hremmingum í vikunni þegar hann hugðist fljúga með Norwegian Air með fiðlu sína meðferðis, segir á Facebook-síðu sinni að flugfélagið hafi beðist afsökunar á því hvernig komið var fram við hann og samferðakonu hans. Flugvélagið hyggst breyta stefnu sinni hvað varðar farþega sem ferðast með hljóðfæri.

Ari þakkar mikilli umfjöllun fjölmiðla og áhuga fólks á málinu það að flugfélagið hafi ákveðið að breyta stefnu sinni en í samtali við Vísi í gær lýsti Ari því hvernig farið var með hann.

Sjá einnig: Meinað að hafa 25 milljón króna fiðlu með sér sem handfarangur

Hann var á leið Kaupmannahafnar til Helsinki en Ari er fiðluleikari í Fílharmoníusveit Helsinki. Þegar hann hugðist skrá sig inn í flugið meinuðu starfsmenn flugfélagsins honum að taka fiðluna sína, sem kostar um 25 milljónir króna, með sér í handfarangur. Í kjölfarið hófst mikil reikistefna.

Starfsmaður Norwegian Air bað Ara afsökunar.Mynd/skjáskot
Ari var fljótur að kvarta undan meðferðinni á Facebook-síðu Norwegian Air. Kvörtun hans vakti mikil viðbrögð en þar sagðist Ari aldrei ætla að fljúga með Norwegian Air aftur og að hann myndi hvetja kollega sína til þess að gera slíkt hið sama. Færslan vakti mjög neikvæð viðbrögð margra sem voru furðu lostnir yfir stefnu Norwegian.

Fyrr í dag bað starfsmaður flugfélagsins Ara afsökunar á óþægindinum og að vegna þessa máls myndi flugfélagið endurskoða stefnu sína hvað varðar farþega sem ferðast með hljóðfæri eins og sjá má hér til hliðar.

Ari segist vera ánægður með flugfélagið hafi beðist afsökunar og þrátt fyrir að hann bíði eftir að sjá breytta stefnu flugfélagsins í verki sagði hann sigri hrósandi: „Það er óhætt að segja að við unnum.“

This has been quite the social media week, with my complaint on Norwegian's Facebook wall receiving over 1,100 likes and...

Posted by Ari Vilhjalmsson on Thursday, 21 January 2016

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×