Viðskipti innlent

Norska krónan í frjálsu falli og raunlaun munu lækka

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Raunlaun í Noregi munu lækka vegna gengishruns þar í landi en norska krónan lækkaði um sex prósent í dag. Ástæðan er hrun á olíumörkuðum. Prófessor í hagfræði við Viðskiptaháskólann í Bergen segir þó ekki ástæðu til að hafa miklar áhyggjur. 

Mikil umfjöllun er í norskum fjölmiðlum í dag um gengishrunið. Þannig sagði í fyrirsögn norska dagblaðsins Dagens Næringsliv að algjört hrun hefði orðið á norsku krónunni. Ástæðan er lækkun á olíumörkuðum.

dr. Rögnvaldur Hannesson, prófessor í fiskihagfræði við Viðskiptaháskólann í Bergen, er norskur ríkisborgari en er fæddur á Íslandi. 

Er þessi staða sem er uppi í Noregi er hún alvarlegt áhyggjuefni fyrir Norðmenn? „Það er út af fyrir sig skiljanlegt að gengið á norsku krónunni hafi lækkað verulega vegna lækkunar á olíuverði. Um helmingur af öllum tekjum í utanríkisverslun Norðmanna koma frá olíu. En það er líka björt hlið á málinu og hún er sú að þegar gengið á krónunni lækkar verður hefðbundinn utanríkisverslun meira arðbær. Bæði fiskvinnsla og annað verður betur samkeppnishæft á erlendum mörkuðum. Þannig að ég held að Norðmenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af því sem hefur gerst með krónuna.“

Hvað með launþega, t.d Íslendinga búsetta í Noregi, ef þetta helst áfram svona? „Auðvitað lækka raunlaun manna ef gengið lækkar. Á hitt er það að líta að það verður auðveldara að halda uppi atvinnu í hefðbundnum útflutningsatvinnuvegum.“

Þúsundir Íslendinga búa í Noregi. Ein norsk króna kostar núna 16,5 íslenskar og þetta graf sýnir glögglega gengishrunið. Norska krónan hefur ekki verið jafn veik frá því í mars 2009. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×