Handbolti

Noregur örugglega í átta liða úrslit

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Sander Sagosen átti góðan leik í dag.
Sander Sagosen átti góðan leik í dag. vísir/getty
Noregur vann öruggan tíu marka sigur á Makedóníu 34-24 í fyrsta leik 16 liða úrslita heimsmeistarakeppninnar í handbolta í dag.

Leikurinn var jafn og spennandi framan af en Noregur var tveimur mörkum yfir í hálfleik 12-10.

Leikurinn var aldrei spennandi í seinni hálfleik og Noregur fór næsta auðveldlega áfram. Noregur skoraði 22 mörk í seinni hálfleik og átti Makedónía engin svör við góðum leik Norðmanna.

Eivind Tangen og Magnus Jondal skoruðu sex mörk hvor fyrir Noreg og Sander Sagosen, Bjarte Myrhol og Kristian Bjornsen fimm mörk hver.

Kiril Lazarov var markahæstur hjá Makedóníu með sex mörk en þurfti 13 skot til að ná þeim. Sjojanche Stoilov skoraði 5 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×