Erlent

Norðmenn takast á við heróínfíkla með heróíni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Um það bil sextán af hverri milljón íbúum heimsins láta lífið vegna of stórs heróínsskammts.
Um það bil sextán af hverri milljón íbúum heimsins láta lífið vegna of stórs heróínsskammts.

Það er alþekkt vandamál að Norðmenn glíma við einn stærsta heróínvanda vestrænna þjóða en sjötíu af hverjum milljón íbúum landsins látast vegna neyslu efnisins. Sé litið til Evrópu er aðeins Eistland með hærra hlutfall virkra notenda en Noregur. Nú stendur til að taka á vandanum með nokkuð róttækum hætti. Fjallað er um málið af AP.

Hin nýja lausn er fólgin í því að gefa lengst leiddu notendunum, þeim sem ekki sýna nein viðbrögð við öðrum meðferðum, heróín. Notendurnir munu geta komið á þar til gerða staði og fengið heróínskammtinn sinn hjá heilsbirgðisstarfsfólki. Fíklarnir munu einnig geta fá húsaskjól á meðan vímunni stendur.

Markmiðið er að venja fíklana af vananum með því að minnka skammt þeirra smám saman en í þeim tilfellum sem það tekst ekki þykir það huggun harmi gegn að vita af neytendunum í öruggu húsaskjóli en ekki á götunni. Einnig þykir forsvarsmönnum herferðarinnar gott að á stofunum verður boðið upp á efni þar sem gæði þess eru trygg, sprautunálarnar séu hreinar og engin hætta á að einhver óþverri leynist í því.

„Við getum ekki haldið áfram að gera fíkla að glæpamönnum. Ef það á að leysa þennan vanda verða þeir að geta treyst fólki sem starfar í heilbrigðisgeiranum,“ segir Kim Arnetvedt en hann er einn af ríflega þúsund heróínfíklum sem búa í Bergen. Að hans sögn eru of margir sem telja að heilbrigðiskerfið sé of tengt lögregluyfirvöldum og forðist því að leita sér aðstoðar.

Líkt og áður segir verður þetta úrræði í boði fyrir þá lengst leiddu en fyrir aðra verður áfram keyrt á hefðbundnari aðferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×