Sport

NFL hugsar um þarfir litblindra í ár

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessir búningar gerðu litblinda brjálaða í fyrra.
Þessir búningar gerðu litblinda brjálaða í fyrra. vísir/getty
Litblindir brjáluðust er leikur í NFL-deildinni í fyrra fór fram á milli liða í grænum og rauðum búningum.

Þessi litasamsetning gerði það að verkum að stór hluti áhorfenda sá bara grátt. Litirnir runnu saman í gráa litinn og litblindir sáu engan mun á búningum liðanna.

Í fyrra byrjaði NFL-deildin með nýja búninga í fimmtudagsleikjunum sínum. Ólíkt því sem venjulega er þá eru bæði buxur og treyja í sama lit.

Leikurinn sem gerði litblinda brjálaða í fyrra var á milli New York Jets og Buffalo Bills. Liðin mætast aftur í fimmtudagsleik á morgun og menn hafa ekki gleymt látunum í fyrra.

Jets verður nefnilega ekki í grænu heldur í hvítu. Litblindir ættu því að þekkja liðin í sundur að þessu sinni.

Svona horfðu litblindir á leikinn í fyrra.vísir/getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×